Fotbolti.net
01.09.26 - 18:20
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal lánar Nwaneri til Dortmund (Staðfest)

Arsenal lánar Nwaneri til Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Borussia Dortmund

Borussia Dortmund hefur landað enska vængmanninum Ethan Nwaneri á láni frá Englandsmeisturum Arsenal út tímabilið.
Arsenal samþykkti að lána Nwaneri til Dortmund svo hann fengi meiri spilatíma, enda ljóst að tækifærin yrðu af skornum skammti undir stjórn Mikel Arteta á þessari leiktíð.

Þetta er annað tímabilið í röð sem Nwaneri fer á láni frá Arsenal en hann lék með Marseille seinni hluta síðasta tímabils.

Dortmund staðfesti komu hans í kvöld og er um hreinan lánssamning að ræða án kaupákvæðis.

Þýska félagið er þekkt fyrir að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri og ætti Dortmund því að vera kjörinn staður fyrir hinn 19 ára gamla Nwaneri til að sýna hvað í honum býr.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.