Fotbolti.net
01.09.26 - 21:36
Brynjar Ingi Erluson

Hull fær þrjá leikmenn (Staðfest)

Iroegbunam er kominn frá Everton

Iroegbunam er kominn frá Everton

Canon

Mynd: Hull City

Nýliðar Hull City hafa fengið Brooke Norton-Cuffy, Robinio Vaz og Tim Iroegbunam til félagsins undir lok gluggans.
Norton-Cuffy er 22 ára hægri bakvörður sem er uppalinn hjá Arsenal en hefur leikið með Genoa undanfarin tvö ár. Hull greiðir 12,5 milljónir punda fyrir hann og hefur leikmaðurinn skrifað undir langtímasamning.

Enska félagið hefur einnig keypt miðjumanninn Tim Iroegbunam frá Everton fyrir 22 milljónir punda. Iroegbunam er 23 ára, hóf ferilinn hjá Aston Villa og gekk til liðs við Everton fyrir tveimur árum. Bæði hann og Norton-Cuffy hafa leikið fyrir yngri landslið Englands.

Franskiframherjinn Robinio Vaz er einnig kominn til Hull frá Roma. Vaz er aðeins 19 ára og þykir mikið efni en hann gekk til liðs við ítalska félagið frá Marseille í byrjun ársins.

Vaz kemur á láni út tímabilið með möguleika á varanlegum félagaskiptum.

Hull hefur jafnframt lánað Liam Millar til Birmingham City en Cody Drameh fór í hina áttina til Genoa sem hluti af kaupunum á Norton-Cuffy.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.