FRÉTTIR15.04.2026, 13:11
Oliver Heiðarsson er genginn í raðir KA en hann kemur til félagsins frá króatíska félaginu Lokomotiva Zagreb. Oliver skrifar undir þriggja ára samning á Akureyri. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum á laugardag. Oliver er mættur til Akureyrar og getur spilað gegn Víkingi í 2. umferð Bestu deildarinnar á föstudag.
Hann er 25 ára sóknarmaður sem býr yfir miklum hraða. Hann hefur mest spilað á hægri kantinum en hefur einnig spilað í fremst á vellinum. Oliver er uppalinn hjá Þrótti en lék með FH og blómstraði hjá ÍBV áður en hann hélt til Króatíu.
Á síðasta ári reyndu bæði Valur og KA að kaupa hann af ÍBV en án árangurs og hélt Oliver á frjálsri sölu til Króatíu eftir síðasta tímabil. Oliver var besti leikmaður Lengjudeildarinnar 2024, meiðsli settu strik í reikninginn á síðasta tímabili en hann skoraði þó fjögur mörk og lagði upp þrjú í 20 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar.
FRÉTTIR15.04.2026, 12:08
<b>Serbía 0 - 3 Ísland</b>
0-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('28)
0-2 Freyja Stefánsdóttir ('36)
0-3 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('50)
<i>Upplýsingar fengnar frá UEFA</I>
FRÉTTIR15.04.2026, 08:00
Bandarísku meistararnir í Inter Miami voru ekkert að flækja hlutina við ráðningu á nýjum þjálfara en það kemur Argentínumaður í stað Argentínumanns. Guillermo Hoyos er tekinn við af Javier Mascherano sem sagði upp störfum vegna persónulegra ástæðna.
FRÉTTIR15.04.2026, 06:00
Sóknarmaðurinn Íris Ösp Gunnarsdóttir er mætt í FHL frá Sindra.
FRÉTTIR15.04.2026, 06:00
Miðjumaðurinn Bjarki Fannar Arnþórsson hefur gengið frá samningi við Fjölni um að leika með liðinu á komandi tímabili.
FRÉTTIR15.04.2026, 06:00
Bandaríski markvörðurinn Gabriel Michael Thull er genginn til liðs við Ægi í Lengjudeildinni.
FRÉTTIR14.04.2026, 18:44
Argentínski þjálfarinn Javier Mascherano er hættur með bandaríska félagið Inter Miami vegna persónulegra ástæðna. Félagið tilkynnti þetta í dag.
FRÉTTIR14.04.2026, 13:14
Andoni Iraola lætur af störfum sem stjóri Bournemouth í sumar en viðræður um nýjan samning skiluðu ekki árangri.
Iraola hefur sterklega verið orðaður við Athletic Bilbao en Ernesto Valverde tilkynnti í síðasta mánuði að hann myndi láta af störfum hjá Bilbæingum eftir tímabilið. Iraola er fyrrum leikmaður Bilbao og lék með liðinu í tólf ár.
FRÉTTIR14.04.2026, 06:00
Sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur er búið að tryggja sér þjónustu bandaríska miðjumannsins Ellie Coffield.
FRÉTTIR14.04.2026, 06:00
Tindastóll var að styrkja sig með sóknartengiliði frá Portúgal sem getur einnig spilað á báðum köntum.
FRÉTTIR14.04.2026, 06:00
Aldís Kara Lúðvíksdóttir er búin að skrifa undir samning við Hauka eftir rúmlega þriggja ára fjarveru frá fótboltaheiminum.
FRÉTTIR14.04.2026, 06:00
Jóhannes Breki Harðarsson hefur fengið félagaskipti úr KFG í Kára og mun spila á Akranesi í 2. deildinni í sumar.
Jói Breki, sem er 22 ára, lék síðast með Kára árið 2021 í 2. deildinni.
Hann hefur spilað á ferlinum með ÍA, Kára, Ægi og KFG, en einnig á hann tvo leiki með U-16 liði Íslands.
Jóhannes Breki er sóknarsinnaður leikmaður sem verður spennandi að fylgjast með í sumar.
FRÉTTIR13.04.2026, 21:23
HK er búið að staðfesta félagaskipti Róberts Quental Árnasonar til sín úr röðum Leiknis R. þar sem hann hefur verið í mikilvægu hlutverki undanfarin ár.
FRÉTTIR13.04.2026, 19:48
Portúgalinn þaulreyndi Carlos Queiroz hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Gana og mun stýra landsliðinu á HM í sumar.
FRÉTTIR13.04.2026, 18:00
Oliver á leið í KA, ævintýramaðurinn farinn frá Húsavík og Óskar Hrafn í fyrirsætustörfum.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR13.04.2026, 07:30
Fram hefur samið við bandaríska framherjan Taylor Hamlett um að leika með liðinu í Bestu deild kvenna í sumar.
Taylor er 23 ára gömul og kemur frá FHL þar sem hún lék seinni hluta síðasta sumar og skoraði þar þrjú mörk í sjö leikjum. Taylor hefur þegar hafið æfingar með liðinu í æfingaferð á Tenerife og komið virkilega vel inn í hópinn.
FRÉTTIR13.04.2026, 06:00
Tindastóll hefur samið við Aimiliu Daskalou, kantmann frá Grikklandi.
Aimilia er fædd árið 2005 en hún lék síðast með LASK í austurrísku deildinni.
FRÉTTIR11.04.2026, 09:30
Þýski miðvörðurinn Nico Schlotterbeck hefur skrifað undir nýjan samning við Borussia Dortmund sem gildir næstu fimm árin.
FRÉTTIR10.04.2026, 16:40
Valur hefur fest kaup á Sigrúnu Ísfold Valsdóttur frá HK. Sigrún, sem er fædd árið 2009, gengur til liðs við Hlíðarendafélagið eftir að hafa spilað tólf leiki með HK í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
Hún á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki á síðasta ári.
FRÉTTIR10.04.2026, 15:46
Markús Steinn Markan Ásmundsson, sem fæddur er árið 2008, er kominn til Fjölnis frá Breiðabliki þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka félagsins.
Fjölnir féll úr Lengjudeildinni í fyrra en stefnir á að staldra ekki lengi við í 2. deildinni.