Oliver Heiðarsson er genginn í raðir KA en hann kemur til félagsins frá króatíska félaginu Lokomotiva Zagreb. Oliver skrifar undir þriggja ára samning á Akureyri. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum á laugardag. Oliver er mættur til Akureyrar og getur spilað gegn Víkingi í 2. umferð Bestu deildarinnar á föstudag.
Hann er 25 ára sóknarmaður sem býr yfir miklum hraða. Hann hefur mest spilað á hægri kantinum en hefur einnig spilað í fremst á vellinum. Oliver er uppalinn hjá Þrótti en lék með FH og blómstraði hjá ÍBV áður en hann hélt til Króatíu.
Á síðasta ári reyndu bæði Valur og KA að kaupa hann af ÍBV en án árangurs og hélt Oliver á frjálsri sölu til Króatíu eftir síðasta tímabil. Oliver var besti leikmaður Lengjudeildarinnar 2024, meiðsli settu strik í reikninginn á síðasta tímabili en hann skoraði þó fjögur mörk og lagði upp þrjú í 20 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar.

Á meðan Oliver var leikmaður og með leikheimild hjá Lokomotiva spilaði liðið ellefu leiki en Oliver kom ekkert við sögu og var átta sinnum utan hóps.
Valur, Breiðablik og Keflavík voru einnig orðuð við Oliver sem ákvað að semja á Akureyri.
Frétt á heimasíðu KA
Knattspyrnudeild KA hefur borist gríðarlegur liðsstyrkur en Oliver Heiðarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið en hann gengur í raðir KA frá króatíska stórliðinu Lokomotiva Zagreb.
Oliver sem er 25 ára gamall er öflugur sóknarmaður sem leikur iðulega á hægri kanti gekk í raðir Lokomotiva Zagreb eftir síðasta sumar en hann vakti verðskuldaða athygli er hann fór fyrir liði ÍBV sumrin 2023 til 2025 en á þeim tíma tryggði ÍBV sér sæti í efstudeild á ný og var spútniklið deildarinnar í fyrra. Þar áður lék hann með FH sumrin 2021 og 2022 en Oliver sem er uppalin í Þrótti Reykjavík hóf meistaraflokksferil sinn í Laugardalnum.
Faðir Olivers er enginn annar en (Dalvíkingurinn) Heiðar Helguson sem gerði garðinn frægan með Watford, Fulham, Bolton, QPR og Cardiff í enska boltanum auk þess að leika 55 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og á Oliver því ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana.
Það er óhætt að fullyrða að koma Olivers norður mun styrkja okkar öfluga lið enn frekar og hlökkum við til að sjá til hans í gula og bláa búningnum í sumar. Oliver mætti norður í dag og kemur því strax inn í leikmannahópinn en næsti leikur KA er heimaleikur á föstudaginn gegn Íslandsmeisturum Víkings.
Oliver Heiðarsson er gulur og blár ???????? #LifiFyrirKA pic.twitter.com/FGnUxxQpt3
— KA (@KAakureyri) April 15, 2026