Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   mið 15. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Íris Ösp í FHL (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: FHL
Sóknarmaðurinn Íris Ösp Gunnarsdóttir er mætt í FHL frá Sindra.

Íris er fædd árið 2009 og skrifar undir samning út þetta tímabil.

Á síðustu leiktíð skoraði hún fimm mörk með Sindra í 2. deildinni en alls hefur hún spilað 39 leiki og skorað 10 mörk í deild- og bikar á þremur tímabilum í meistaraflokki.

FHL spilaði í Bestu deildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins á síðustu leiktíð en féll aftur niður í Lengjudeildina. Samstarf er á milli Sindra og FHL um að leikmenn Sindra geti spilað með liðinu í meistara- og 2. flokki, en Hornfirðingar verða ekki með lið í sumar.


Slapp
banner
banner