Miðjumaðurinn Bjarki Fannar Arnþórsson hefur gengið frá samningi við Fjölni um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Bjarki er fæddur 2003 og uppalinn í Fjölni, árgangi sem var gríðarlega sigursæll í yngri flokkunum.
Síðustu ár hefur hann spilað með Vængjum Júpiters, venslafélagi Fjölnis, og þróað leik sinn mikið. Hann hefur komið sterkur inn í hópinn hjá Fjölni.
„Bjarki Fannar er gegnheill Fjölnismaður sem kemur aftur yfir í Fjölni frá Vængjum, leikmaður sem mun gleðja stuðningsmenn með skemmtilegum tilþrifum og sigrum í komandi framtíð,“ sagði Gunnar Már Guðmundsson, þjálfari Fjölnis, í dag.
Bjarki Fannar er ánægður með að vera kominn aftur í uppeldisfélagið.
„Það er auðvitað bara frábært að vera kominn í Fjölni, virkilega skemmtilegur hópur og er ég mjög spenntur fyrir sumrinu. Grafarvogsbúar, mætið á völlinn, þetta verður veisla í sumar!“ .


