Þýski miðvörðurinn Nico Schlotterbeck hefur skrifað undir nýjan samning við Borussia Dortmund sem gildir næstu fimm árin.
Schlotterbeck er 26 ára gamall og var að renna út á samningi hjá Dortmund.
Bayern München, Liverpool og Real Madrid voru meðal liða sem voru að skoða hann fyrir sumargluggann.
Þýskir miðlar voru margir hverjir sannfærðir um að samningar myndu ekki nást en á endanum náðist samkomulag og skrifaði Schlotterbeck undir nýjan samning sem gildir til 2031.
Geggjaðar fréttir fyrir Schlotterbeck sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki í liðinu síðan hann kom til félagsins frá Freiburg fyrir fjórum árum.
Á þessum tíma hefur hann spilað 155 leiki og skorað 10 mörk, og komist einu sinni í úrslit Meistaradeildarinnar.
Nico Schlotterbeck extends his contract! ????
— Borussia Dortmund (@BlackYellow) April 10, 2026
BVB have reached an agreement with Nico Schlotterbeck on a contract extension, keeping him at the club until 2031. ?? pic.twitter.com/TADMIi2oUY




