Fotbolti.net
10.04.26 - 15:46
Elvar Geir Magnússon

Markús Steinn í Fjölni (Staðfest)

Gunnar Már Guðmundsson þjálfari Fjölnis og Markús Steinn Markan Ásmundsson.

Gunnar Már Guðmundsson þjálfari Fjölnis og Markús Steinn Markan Ásmundsson.

Canon

Mynd: Fjölnir

Markús Steinn Markan Ásmundsson, sem fæddur er árið 2008, er kominn til Fjölnis frá Breiðabliki þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka félagsins.

Fjölnir féll úr Lengjudeildinni í fyrra en stefnir á að staldra ekki lengi við í 2. deildinni.
„Markús Steinn er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum, en leikur helst á miðjunni eða í sókn þar sem hann nýtir vel tæknilega hæfileika sína og mikla hlaupagetu," segir á heimasíðu Fjölnis.

„Sterkar tengingar eru einnig til staðar við Fjölni í fjölskyldu Markúsar. Móðurbróðir hans er Pétur Georg Markan sem lék með Fjölni á sínum tíma og faðir hans er Ásmundur Arnarsson, fyrrum þjálfari Fjölnis. Telja má því líklegt að fyrsta liðstreyjan sem Markús klæddist hafi verið Fjölnistreyja."

Markús Steinn sjálfur er spenntur fyrir nýju áskoruninni í Grafarvoginum:

„Ég er ótrúlega glaður að vera kominn hingað í Fjölni í topp aðstæður og gott umhverfi. Ég vonast til að geta hjálpað þessum stóra klúbbi að komast aftur á sinn stað og á sama tíma þroskast og taka framförum sem leikmaður," segir Markús við heimasíðu Fjölnis.

Skagamaðurinn Axel Freyr Ívarsson hefur hinsvegar yfirgefið Fjölni eftir eitt ár í Grafarvoginum og gengið í raðir KFG sem einnig leikur í 2. deild.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar14+1729
2Selfoss14+626
3Kári14+1524
4Fjölnir14+521
5Víkingur Ó.14-421
6Kormákur/Hvöt14+1120
7Dalvík/Reynir14020
8KFA14+617
9Magni14-1715
10Þróttur V.14-713
11Hvíti riddarinn14-813
12KFG14-2413
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.