Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 18:44
Brynjar Ingi Erluson
Hættir með Inter Miami vegna persónulegra ástæðna (Staðfest)
Mynd: Inter Miami
Argentínski þjálfarinn Javier Mascherano er hættur með bandaríska félagið Inter Miami vegna persónulegra ástæðna. Félagið tilkynnti þetta í dag.

Mascherano tók við Inter Miami fyrir rúmu ári síðan og náði sögulegu afreki með liðinu er það varð bandarískur meistari í fyrsta sinn.

Hann stýrði því einnig á HM félagsliða sem fór fram síðasta sumar og þar hélt hann áfram að skrifa félagið í sögubækurnar er það komst í útsláttarkeppnina.

Um leið varð Inter Miami fyrsta liðið til að vinna evrópskt félag í keppnisleik og fyrsta bandaríska liðið til að vinna leik í keppninni.

Hann er nú hættur með liðið vegna persónulegra ástæðna.

„Ég vil koma því á framfæri að ég hef ákveðið að segja upp störfum vegna persónulegra ástæðna. Ég vil fyrst og fremst þakka félaginu fyrir traustið og öllum sem starfa þar fyrir samvinnuna og sérstaklega leikmönnunum sem gerðu okkur kleift að upplifa ógleymanleg augnablik. Einnig vil ég þakka stuðningsmönnunum og La Familia því við hefðum ekki getað þetta án þeirra.“

„Ég mun ávalt geyma þá minningu þegar við unnum fyrsta deildarmeistaratitilinn og mun ég halda áfram að óska félaginu alls hins besta í framtíðinni. Ég er í engum vafa um það að félagið mun halda áfram að ná árangri í framtíðinni. Ég sendi ykkur öllum stórt knús og bara takk fyrir allt,“
sagði Mascherano.

Tímabilið í Bandaríkjunum hófst í lok febrúar en Inter Miami er í 3. sæti Austur-deildarinnar með 12 stig, fjórum stigum frá toppnum þegar sjö umferðir hafa verið leiknar.


Slapp
banner