Valur hefur fest kaup á Sigrúnu Ísfold Valsdóttur frá HK. Sigrún, sem er fædd árið 2009, gengur til liðs við Hlíðarendafélagið eftir að hafa spilað tólf leiki með HK í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
Hún á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki á síðasta ári.
Hún á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki á síðasta ári.
Tilkynning Vals:
Valur semur við Sigrúnu Ísfold Valsdóttur
Knattspyrnudeild Vals hefur samið við Sigrúnu Ísfold Valsdóttur sem kemur til félagsins frá HK.
Sigrún sem fædd er árið 2009 er einn efnilegasti leikmaður landsins og hefur verið lykilmaður í yngri landsliðum Íslands. Með komu hennar höldum við áfram að styrkja hópinn með framúrskarandi leikmönnum og byggja upp sterkt lið til framtíðar.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sigrún þegar aflað sér dýrmætrar reynslu í meistaraflokki. Á síðasta tímabili var hún fastamaður hjá HK í Lengjudeildinni þar sem hún steig sín fyrstu skref á stærra sviði með góðum árangri.
Gareth Owen, tæknilegur stjórnandi Vals, segir komu hennar mikið fagnaðarefni:
„Við erum mjög ánægð með að fá Sigrúnu til félagsins. Hún er afar efnilegur leikmaður með mikla hæfileika og hugarfar sem fellur vel að því sem við erum að byggja upp hjá Val. Hún bætir gæðum í hópinn og við hlökkum til að fylgjast með henni þróast í okkar umhverfi.“
Velkomin í Val, Sigrún!



