Andoni Iraola lætur af störfum sem stjóri Bournemouth í sumar en viðræður um nýjan samning skiluðu ekki árangri.
Iraola hefur sterklega verið orðaður við Athletic Bilbao en Ernesto Valverde tilkynnti í síðasta mánuði að hann myndi láta af störfum hjá Bilbæingum eftir tímabilið. Iraola er fyrrum leikmaður Bilbao og lék með liðinu í tólf ár.

Iraola hefur stýrt Bournemouth síðan 2023 og orðspor hans vaxið hratt og örugglega.
BBC segir að fjölskylda hans vilji flytja aftur til Spánar og það spili inn í ákvörðun hans að gera ekki nýjan samning við Bournemouth. Enska félagið lagði mikið kapp á að reyna að halda honum.
Bournemouth sýnir Iraola skilning en það er talsvert högg fyrir félagið að missa hann.