Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25143 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR26.07.2024, 12:44

Kristín Dís yfirgefur Bröndby (Staðfest)

Kristín Dís Árnadóttir hefur sagt skilið við Bröndby eftir tvö og hálft hjá danska félaginu. Liðið var grátlega nálægt því að vinna tvo titla í vor en endaði með hvorugan því Nordsjælland hafði betur bæði í deildinni og í úrslitaleik bikarsins. Kristín Dís er uppalin hjá Breiðabliki og hélt til Danmerkur í vetrarglugganum eftir tímabilið 2022. Hún sleit krossband á fyrsta tímabili sínu með Bröndby og sneri til baka fyrir um ári síðan. Hún lék sem miðvörður og bakvörður í Danmörku og hefur verið í landsliðshópnum í síðustu verkefnum. Hún verður 25 ára í næsta mánuði og hefur verið orðuð við annð félag í Danmörku, OB.

FRÉTTIR26.07.2024, 11:59

Jón Jökull í Vogana og Breki Hólm til Dalvíkur (Staðfest)

Jón Jökull Hjaltason hefur verið lánaður frá Þór til Þróttara í Vogum. Jón Jökull samdi til tveggja ára við Þór í vetur en hann kom frá Vestmannayejum. Jón Jökull þekkir til í Vogum því hann lék með liðinu á láni fyrri part sumars 2022. Hann lék þó einungis tvo leiki með liðinu áður en hann fór aftur til Eyja. <i>„Jón Jökull er 23 ára gamall fjölhæfur miðjumaður sem hefur leikið með ÍBV undanfarin fjögur tímabil áður eða áður en hann skipti yfir til Þórsara, en Jón ólst að hluta upp í Danmörku og fór þar í gegnum unglingstarf danska úrvalsdeildarliðsins AGF Aarhus,"</I> segir í tilkynningu Þróttara í dag. Þróttur er í 6. sæti 2. deildar, sjö stigum frá 2. sætinu þegar níu umferðir eru eftir. Jón Jökull er kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Víkingi Ólafsvík í kvöld.

FRÉTTIR26.07.2024, 11:00

Jesper Lindström í Everton (Staðfest)

Everton hefur fengið danska landsliðsmanninn Jesper Lindström á láni frá Napoli. Lindström verður á láni hjá Everton út komandi tímabil og svo á enska félagið möguleika á því að kaupa hann.

FRÉTTIR26.07.2024, 06:00

Barcelona kaupir Víctor og Mbacke (Staðfest)

Spænska stórveldið FC Barcelona er búið að festa kaup á tveimur leikmönnum sem léku hjá félaginu á láni á síðustu leiktíð og gerðu frábæra hluti með B-liði félagsins.

FRÉTTIR25.07.2024, 23:30

En-Nesyri til Fenerbahce (Staðfest)

Marokkóski framherjinn Youssef En-Nesyri er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Fenerbahce, þar sem hann mun leika undir stjórn José Mourinho.

FRÉTTIR25.07.2024, 19:40

Oli McBurnie til Las Palmas (Staðfest)

Oliver McBurnie, betur þekktur sem Oli McBurnie, er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við spænska félagið Las Palmas.

FRÉTTIR25.07.2024, 17:59

Guðlaugur Victor til Plymouth (Staðfest) - Aftur til Rooney

Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur skrifað undir hjá enska B-deildarfélaginu Plymouth Argyle. Hann er því aftur kominn undir stjórn Wayne Rooney, eftir að þeir unnu saman hjá DC United. Guðlaugur Victor er 33 ára og hefur leikið 44 landsleiki fyrir Ísland. Hann lék síðast fyrir Eupen í Belgíu en náði ekki að koma í veg fyrir fall liðsins úr belgísku úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR25.07.2024, 17:30

Mónika Hlíf í HK (Staðfest)

Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir er gengin í raðir HK og spilar með liðinu út tímabilið í Lengjudeildinni. Þegar sjö umferðir eru eftir af deildinni á HK raunhæfan möguleika á því að fara upp um deild og þangað er stefnan sett. Mónika er fædd árið 1998 og lék síðast á Íslandi sumarið 2020 þegar hún skoraði fimm mörk í fimm leikjum með Álftanesi í 2. deild. Hún er uppalin hjá Stjörnunni og hefur leikið með Skínanda, Álftanesi, ÍR og KR á sínum meistaraflokksferli á Íslandi. Móníka fór í nám eftir tímabilið 2018 og starfar í dag sem sjúkraþjálfari.

FRÉTTIR25.07.2024, 15:00

ÍA fær Hellinx frá Belgíu (Staðfest)

ÍA tilkynnti í dag að Hanne Hellinx væri gengin í raðir félagsins og hefði samið út tímabiið. Hanne er fædd árið 2002 og segir í tilkynningu ÍA að hún sé fjölhæfur leikmaður sem geti leyst allar stöður á miðju og vörn. Hanne er frá Belgíu og hefur leikið með Charleroi og Mechele í efstu deild heimalandsins.

FRÉTTIR25.07.2024, 13:47

Fram sækir tvo öfluga leikmenn (Staðfest)

Þær Dominique Bond-Flasza og Alia Skinner eru mættar í Fram og taka slaginn með liðinu út tímabilið. Alia er markvörður og Dominique er varnarmaður sem er í landsliði Jamaíku Hún er 27 ára og þekkir hún vel til á Íslandi því hún lék undir stjórn þjálfara Fram, Óskars Smára Haraldssonar, tímabilið 2021 og svo með Grindavík í Lengjudeildinni 2021. Fram er í 6. sæti Lengjudeildarinnar og á leik gegn ÍA í kvöld. Dominique er komin með leikheimild fyrir leikinn en ekki Alia.

FRÉTTIR25.07.2024, 13:00

Georg Guðjohnsen í KFK (Staðfest)

Georg Ethan Guðjohnsen Mitchell fékk í gær félagaskipti í KFK frá Spáni. Hann tekur slaginn með KFK í 3. deildinni. Georg er fæddur árið 2003 sem fór á reynslu til Bolton í lok síðasta árs. Hann hefur spilað í utandeildinni á Englandi að undanförnu.

FRÉTTIR24.07.2024, 21:47

Diaby kominn til Al-Ittihad (Staðfest)

Sádi-arabíska stórveldið Al-Ittihad er búið að festa kaup á franska kantmanninum Moussa Diaby og bætist hann við stjörnum prýddan leikmannahóp liðsins.

FRÉTTIR24.07.2024, 20:30

Dani Ndi skiptir til Grindavíkur (Staðfest)

Grindavík er búið að næla sér í liðsstyrk úr 2. deildinni þar sem Daniel Arnaud Ndi, betur þekktur sem Dani Ndi, er genginn til liðs við félagið.

FRÉTTIR24.07.2024, 12:35

Grótta fær Töru frá Víkingi (Staðfest) - Margrét Rán framlengir

Tara Jónsdóttir er gengin í raðir Gróttu á láni frá Víkingi út tímabilið. Miðjumaðurinn Tara á að hjálpa Gróttu í baráttunni um sæti í efstu deild á komandi tímabili. Grótta er í 3. sæti, stigi á eftir Aftureldingu þegar sjö umferðir eru eftir. FHL situr á toppnum, átta stigum á undan Aftureldingu. Tara er fædd árið 2001 og hefur komið við sögu í átta leikjum með Víkingi á tímabilinu. Hún var ekki í leikmannahópnum þegar Víkingur lagði Þór/KA í síðustu umferð. Hún er komin með leikheimild með Gróttu og getur spilað gegn ÍBV á föstudag. Samningur hennar við Víking rennur út eftir næsta tímabil.

FRÉTTIR24.07.2024, 11:00

Ásgeir Börkur í Hvíta riddarann (Staðfest)

Reynsluboltinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson hefur fengið félagaskipti frá ÍR í Hvíta riddarann. Börkur lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil þar sem hann fór upp með ÍR úr 2. deildinni. Nú er komið að átökum í 3. deildinni þar sem Hvíti riddarinn er sem stendur í botnsætinu.

FRÉTTIR23.07.2024, 22:11

Stígur til Triestina (Staðfest)

Ítalska félagið Triestina er búið að gera þriggja ára samning við hinn 18 ára gamla Stíg Diljan Þórðarson sem kemur til félagsins úr röðum Benfica í Portúgal.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.