Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25091 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR28.03.2026, 08:00

Jakob Jóhann aftur í KÁ (Staðfest)

KÁ var að krækja í afar öflugan liðsstyrk eftir að hafa tekist að sannfæra Jakob Jóhann Veigarsson um að snúa aftur til félagsins.

FRÉTTIR28.03.2026, 07:30

Aldís Ylfa hættir hjá KSÍ (Staðfest)

Aldís Ylfa Heimisdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem landsliðsþjálfari U15 landsliðs kvenna og yfirmaður hæfileikamótunar N1 og KSÍ.

FRÉTTIR28.03.2026, 06:00

Gabríel og Oliver stýra Augnabliki í sumar (Staðfest)

Gabríel Þór Stefánsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Augnabliks í 3. deild eftir að hafa leikið fyrir félagið og unnið sér inn góðan orðstír við þjálfun í yngri flokkum Breiðabliks.

FRÉTTIR27.03.2026, 17:30

Nathan Redmond í Blackburn (Staðfest)

Nathan Redmond er genginn í raðir Blackburn og mun spila með liðinu út tímabilið í Championship deildinni. Redmond var án félags og getur því skipt til Blackburn utan félagaskiptaglugga. George Pratt er einnig kominn inn í 25 manna leikmannahóp félagsins.

FRÉTTIR27.03.2026, 15:00

Elvis frá Eyjum til Aberdeen (Staðfest)

Eyjamaðurinn Elvis Bwomono er aftur farinn til Skotlands og hefur skrifað undir samning við Aberdeen sem gildir út tímabilið. Elvis var með lausan samning eftir síðasta tímabil og mátti því semja við Aberdeen utan félagaskiptaglugga. Hann þekkir til í Skotlandi því hann lék með St. Mirren 2023-25. Hjá Aberdeen hittir Elvis fyrir Kjartan Má Kjartansson sem gekk í raðir skoska félagsins frá Stjörnunni síðasta sumar.

FRÉTTIR27.03.2026, 12:09

Sebastian Haugland í Þór (Staðfest)

Þórsarar á Akureyri hafa staðfest kaup á norska framherjanum Sebastian Haugland. Haugland kemur frá norska B-deildar félaginu Hödd. Haugland, sem er 29 ára, skrifar undir þriggja ára samning í Þorpinu.

FRÉTTIR27.03.2026, 12:04

Sveinn Margeir í KA (Staðfest)

Sveinn Margeir Hauksson er mættur í KA en hann kemur á láni frá Víkingi. KA tilkynnir að um lánssamning út tímabilið 2026 sé að ræða. Sveinn er að snúa aftur í KA en hann spilaði síðast með liðinu 2024. Hann átti þá mjög góðan kafla áður en hann hélt til Bandaríkjanna - var einn allra besti leikmaður liðsins. Eftir það tímabil nýtti hann sér uppsagnarávkæði í samningi sínum og samdi í kjölfarið við Víking. Á síðasta ári var hann að klára mastersnám í UCLA í Bandaríkjunum og komu meiðsli í veg fyrir að hann spilaði með Víkingi hluta af síðasta sumri.

FRÉTTIR26.03.2026, 17:30

Selfoss fær kanadískan markvörð (Staðfest)

Sophie Guilmette hefur skrifað undir samning við Selfoss og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Sophie er 25 ára kanadískur markvörðursem útskrifaðist úr McGill háskólanum í Montreal árið 2024. Þar var hún valin í stjörnulið skólans ásamt því að fá viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Frá útskrift hefur hún leikið með CS Longueuil og Halifax Tides FC í heimalandinu. Hún á að baki leiki fyrir yngri landslið Kanada.

FRÉTTIR26.03.2026, 15:46

Andri Hjörvar tekinn við HK (Staðfest)

Andri Hjörvar Albertsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs HK. Hann tekur við af starfinu af Pétri Rögnvaldssyni og mun stýra liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Andri þekkir vel til innan félagsins, en hann hóf störf við þjálfun í HK haustið 2024 og var aðstoðarþjálfari Péturs á síðasta tímabili. Andri Hjörvar var þjálfari Þórs/KA tímabilin 2020-2021 og vann svo hjá Haukum sem yfirþjálfari yngri flokka áður en hann hélt í Kórinn. Hann er uppalinn Þórsari og lék einnig með Grindavík og Fjarðabyggð á sínum leikmannaferli.

FRÉTTIR25.03.2026, 06:00

Enskur sóknarmaður með áhugaverða ferilskrá í Gróttu (Staðfest)

Enski sóknarmaðurinn Nicole Douglas er gengin til liðs við Gróttu en hún spilaði sinn fyrsta leik þegar Grótta mætti Víkingi fyrr í mánuðinum. Nicole verður 26 ára í sumar og á að baki áhugaverðan feril. Hún er alin upp hjá stórliði Chelsea og kom við sögu hjá U17 og U19 ára landsliðum Englands.

FRÉTTIR24.03.2026, 18:53

Salah fer frá Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Mohamed Salah mun yfirgefa Liverpool eftir tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta. Í yfirlýsingu Liverpool kemur fram að Salah hafi náð samkomulag um að þetta verði hans síðasta tímabil hjá félaginu.

FRÉTTIR24.03.2026, 17:30

FH fær nýsjálenskan leikmann (Staðfest)

Helena Errington er gengin í raðir FH en hún kemur á láni út tímabilið í Bestu deildinni. Hún er sókarsinnaður miðjumaður sem spilar með Sporting Club Jacksonville í bandarísku USL deildinni. Hún er fædd árið 2005 og var hjá Sporting í Portúgal og Wellington Phoenix í heimalandinu áður en hún hélt til Bandaríkjanna. Hún á að baki níu leiki og tvö mörk fyrir yngri landslið Nýja-Sjálands samkvæmt Wikipedia. <i>„Helena er sóknarsinnaður miðjumaður frá Nýja Sjálandi sem kemur til okkar á láni út tímabilið frá Sporting Club Jacksonville sem spilar í USL deildinni í Bandaríkjunum. Hún er tæknilega góð, les leikinn vel og líður vel á boltanum,"</i> sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við FH media. Helena er annar leimaðurinn sem FH tilkynnir í dag því Nia Christopher var kynnt fyrir hádegi.

FRÉTTIR24.03.2026, 15:40

Griezmann í Orlando (Staðfest)

Antoine Griezmann hefur gengið til liðs við bandaríska félagið Orlando City. Hann gengur til liðs við félagið í sumar á frjálsri sölu frá Atlético Madrid. Frakkinn semur við liðið út tímabilið 2028 með möguleika á framlengingu til ársins 2029. Griezmann hefur spilað 46 leiki með Atlético á tímabilinu og hefur skorað 14 mörk. Hann var lykilmaður í liði Frakklands sem vann HM í Rússlandi 2018.

FRÉTTIR24.03.2026, 13:46

Dagur Trausta í Fylki (Staðfest)

Dagur Traustason er búinn að semja við Lengjubikarmeistarana í Fylki og mun spila með liðinu á komandi tímabili. Dagur er framherji sem fæddur er árið 2005 og þekkir vel að vinna með Heimi Guðjónssyni því hann spilaði undir stjórn Heimis á síðasta tímabili í Kaplakrika. Dagur skoraði tvö mörk í átta leikjum í Bestu deildinni í fyrra. Dagur er uppalinn hjá FH og hefur leikið með Grindavík og Þrótti á láni. Hann hefur verið í skóla í Bandaríkjunum og verður því mögulega ekki allt tímabilið á Íslandi.

FRÉTTIR24.03.2026, 10:58

Landsliðskona Bermúda í FH (Staðfest)

FH tilkynnti í dag að Nia Raisa Christopher væri gengin í raðir félagsins og skrifar undir samning sem gildir út komandi tímabil í Bestu deildinni. Hún er 24 ára og hefur eingöngu spilað í Bandaríkjunum til þessa á ferlinum. Hún var samherji Thelmu Lóu Hermannsdóttur, núverandi leikmanns FH, hjá Fort Lauterdale í bandarísku USL deildinni.

FRÉTTIR24.03.2026, 10:00

Eltir Óla Stefán á Selfoss (Staðfest)

Króatinn Ivan Paponja er genginn í raðir Selfoss og mun spila með liðinu í 2. deild í sumar. Hann er á leið í sitt fjórða tímabil á Íslandi en fyrstu þrjú lék hann á Hornafirði með Sindra. Í 75 leikjum með Sindra í deild, bikar og deildabikar skoraði hann átta mörk. Um tíma hjá Sindra lék hann undir stjórn Óla Stefáns Flóventssonar sem í vetur var ráðinn þjálfari Selfoss.

FRÉTTIR24.03.2026, 06:00

Einar snýr aftur heim til Sauðárkróks (Staðfest)

Markvörðurinn Einar Ísfjörð Sigurpálsson hefur ákveðið að snúa aftur heim á Sauðárkrók þar sem hann er búinn að semja við uppeldisfélagið sitt Tindastól eftir þriggja ára fjarveru.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.