Sophie Guilmette hefur skrifað undir samning við Selfoss og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Sophie er 25 ára kanadískur markvörðursem útskrifaðist úr McGill háskólanum í Montreal árið 2024. Þar var hún valin í stjörnulið skólans ásamt því að fá viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur.
Frá útskrift hefur hún leikið með CS Longueuil og Halifax Tides FC í heimalandinu. Hún á að baki leiki fyrir yngri landslið Kanada.

Jonathan Glenn tók við liði Selfoss eftir síðasta tímabil eftir að Gunnar Borgþórsson stýrði liðinu upp úr 2. deild. Guðrún Jóna Kristjánsdóttir er aðstoðarþjálfari liðsins.
Athugasemdir