Völsungur var að bæta sænskum miðjumanni við leikmannahópinn hjá sér sem lék síðast með Karlsbergs í þriðju efstu deild í Svíþjóð.
Modoumatarr Mbye er 25 ára gamall og hefur leikið í Svíþjóð nánast allan ferilinn að undanskildu ævintýri með Europa Point FC í Gíbraltar.
„Við bindum miklar vonir við að hann styrkji okkar lið og ætti að vera klár í slaginn strax á morgun," segir í tilkynningu frá Völsungi.
Völsungur tekur á móti Kormáki/Hvöt í Mjólkurbikarnum á morgun og leika Húsvíkingar svo áfram í Lengjudeildinni komandi sumar.
Athugasemdir




