Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Eltir Óla Stefán á Selfoss (Staðfest)
Mynd: Selfoss
Króatinn Ivan Paponja er genginn í raðir Selfoss og mun spila með liðinu í 2. deild í sumar. Hann er á leið í sitt fjórða tímabil á Íslandi en fyrstu þrjú lék hann á Hornafirði með Sindra.

Í 75 leikjum með Sindra í deild, bikar og deildabikar skoraði hann átta mörk. Um tíma hjá Sindra lék hann undir stjórn Óla Stefáns Flóventssonar sem í vetur var ráðinn þjálfari Selfoss.

Úr tilkynningu Selfoss
Ivan er 28 ára Króati sem kom hingað til lands árið 2023 en frá þeim tíma hefur hann leikið með Sindra og á tímabili undir stjórn Óla Stefáns Flóventssonar, núverandi þjálfara Selfoss. Ivan er afar fjölhæfur leikmaður sem getur svo gott sem leyst flestar stöður á vellinum en þó má teljast ólíklegt að við sjáum hann á milli stanganna í sumar.

„Ivan er öflugur leikmaður sem hefur síðustu þrjú ár spilað með Sindra þar sem hann hefur verið fyrirliði og einn þeirra allra besti leikmaður. Ivan er tæknilega góður, fljótur og kröftugur leikmaður sem getur leyst nánast allar stöður á vellinum,” segir Óli Stefán, þjálfari Selfoss.

Velkominn á Selfoss Ivan!

Komnir
Viðar Örn Kjartansson frá KA
Bjarki Flóvent Ásgeirsson frá Álftanesi
Ivan Paponja frá Sindra
Elvar Orri Sigurbjörnsson frá Ægi (var á láni)
Guðmundur Stefánsson frá Ægi (var á láni)

Farnir
Jón Vignir Pétursson í Aftureldingu
Raul Tanque
Harley Willard í Ægi
Alexander Berntsson
Sesar Örn Harðarson í ÍBV
Alfredo Ivan Arguello Sanabria í Ægi
Robert Blakala í Grindavík
Daði Kárason í Víking Ólafsvík (var á láni frá Val)

Samningslausir
Nacho Gil
David Adam Dabrowski
Athugasemdir
banner
banner