Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
banner
   mán 23. mars 2026 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Forseti Marseille samdi um starfslok (Staðfest)
Pablo Longoria er án starfs. Hann hefur áður starfað sem njósnari fyrir félög á borð við Newcastle og Juventus og var ráðinn sem yfirmaður fótboltamála hjá Valencia 2018, þegar hann var aðeins 31 árs gamall.
Pablo Longoria er án starfs. Hann hefur áður starfað sem njósnari fyrir félög á borð við Newcastle og Juventus og var ráðinn sem yfirmaður fótboltamála hjá Valencia 2018, þegar hann var aðeins 31 árs gamall.
Mynd: EPA
Franska stórveldið Marseille er búið að semja við Pablo Longoria um starfslok eftir fimm ár sem forseti félagsins.

Markmiðið var að koma Marseille aftur á sama stall og liðið var á áður en það misheppnaðist. Þrátt fyrir góðan árangur á köflum vann félagið ekki einn einasta titil á forsetatíð Longoria og hafa stuðningsmenn mótmælt honum á undanförnum árum.

Þau mótmæli urðu háværari eftir slakt gengi á núverandi tímabili. Roberto De Zerbi þjálfari sagði af sér og ætlaði Mehdi Benatia yfirmaður fótboltamála að fylgja honum út um dyrnar.

Frank McCourt, bandarískur eigandi Marseille, sannfærði Benatia um að vera áfram með að gefa honum fulla stjórn á fótboltatengdum ákvörðunum. Þá var engin þörf á kröftum Longoria lengur, sem var tjáð að hann yrði settur á ís þar til samningurinn hans rynni út.

Stuðningsmenn Marseille hafa verið mjög aggressívir í mótmælum sínum að undanförnu og meðal annars hótað líkamsmeiðingum.

   17.02.2026 12:30
Furðuleg atburðarás í Frakklandi - Snýr aftur tveimur dögum eftir uppsögn


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner