Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   lau 28. mars 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jakob Jóhann aftur í KÁ (Staðfest)
Mynd: KÁ
KÁ var að krækja í afar öflugan liðsstyrk eftir að hafa tekist að sannfæra Jakob Jóhann Veigarsson um að snúa aftur til félagsins.

Jakob Jóhann er fæddur 1998 og hefur aðeins tekið þátt í 5 keppnisleikjum í meistaraflokki síðustu 12 mánuði, alla með Þorláki.

Jakob ólst upp í Bolungarvík en flutti á Höfuðborgarsvæðið á táningsárunum. Hann þekkir vel til hjá KÁ eftir að hafa verið í uppeldisstarfinu hjá Haukum

„Með hans komu bætist bæði breidd og reynsla í liðið sem undirbýr sig nú af fullum krafti fyrir átökin framundan í 3. deild," segir í tilkynningu frá KÁ.

„Við bjóðum Jakob hjartanlega velkominn aftur í KÁ."


Slapp
Athugasemdir
banner