Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 12:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sebastian Haugland í Þór (Staðfest)
Mynd: Þór
Þórsarar á Akureyri hafa staðfest kaup á norska framherjanum Sebastian Haugland. Haugland kemur frá norska B-deildar félaginu Hödd.

Haugland, sem er 29 ára, skrifar undir þriggja ára samning í Þorpinu.

Úr tilkynningu Þórs
Haugland kemur til Þórs frá norska B-deildarliðinu Hodd þar sem hann var markahæsti leikmaður félagsins á síðustu leiktíð þegar Haugland skoraði átta mörk í sautján leikjum. 2024 skoraði Haugland átta mörk í fjórtán leikjum í sömu deild en þá fyrir Asane.

Við bjóðum Sebastian Haugland velkominn í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar.

Komnir
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra
Atli Sigurjónsson frá KR
Isaac Antanga frá Svíþjóð
Sebastian Haugland frá Noregi
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá FH á láni
Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti
Elvar Baldvinsson frá Völsungi
Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var á láni)

Farnir
Ibrahima Balde í Vestra
Orri Sigurjónsson hættur
Clement Bayiha til Kanada
Rafael Victor í Grindavík
Juan Guardia í Völsung
Dagbjartur Búi Davíðsson í KA (var á láni)
Slapp
Athugasemdir
banner
banner