Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
banner
   þri 24. mars 2026 13:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dagur Trausta í Fylki (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Traustason er búinn að semja við Lengjubikarmeistarana í Fylki og mun spila með liðinu á komandi tímabili.

Dagur er framherji sem fæddur er árið 2005 og þekkir vel að vinna með Heimi Guðjónssyni því hann spilaði undir stjórn Heimis á síðasta tímabili í Kaplakrika. Dagur skoraði tvö mörk í átta leikjum í Bestu deildinni í fyrra.

Dagur er uppalinn hjá FH og hefur leikið með Grindavík og Þrótti á láni. Hann hefur verið í skóla í Bandaríkjunum og verður því mögulega ekki allt tímabilið á Íslandi.

Komnir
Kári Sigfússon frá Keflavík
Hlynur Sævar Jónsson frá ÍA
Guðfinnur Þór Leósson frá ÍA
Dagur Traustason frá FH
Kristófer Leví Sigtryggsson frá Grindavík

Farnir
Emil Ásmundsson hættur
Ásgeir Eyþórsson hættur
Tumi Fannar Gunnarsson í Breiðablik (var á láni)
Halldór Jón Sigurður Þórðarson í ÍBV
Pablo Aguilera til Spánar
Þorkell Víkingsson
Þóroddur Víkingsson
Hilmar Þór Kjærnested Helgason
Athugasemdir
banner
banner