Spænska stórliðið Sevilla er búið að reka þjálfarann Matías Almeyda eftir óviðunandi árangur á tímabilinu.
Sevilla tapaði á heimavelli gegn Valencia um helgina og var það kornið sem fyllti mælinn.
Liðið er búið að tapa 14 leikjum af 29 í La Liga frá því að Almeyda var ráðinn inn fyrir tímabilið og situr í 15. sæti deildarinnar, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Fótboltaunnendur gætu kannast við Almeyda frá dvöl hans í ítalska boltanum þar sem hann lék fyrir Lazio, Inter, Parma og Brescia auk þess að spila 40 landsleiki fyrir Argentínu.
Sögufrægt lið Sevilla, sem vann Evrópudeildina sjö sinnum á árunum 2006 til 2023, hefur verið í miklu basli á undanförnum árum og ekki tekist að ná í meira en 50 stig á einu deildartímabili síðan 2021-22.
Síðustu tvö tímabil endaði Sevilla með 41 stig úr 38 umferðum, í fyrra var liðið aðeins einu stigi frá fallsæti.
Luis García, fyrrum þjálfari Villarreal og Getafe sem stýrði síðast Alavés í spænska boltanum, er talinn vera líklegasti arftakinn.
21.03.2026 22:23
Spánn: Valencia vann í Sevilla
?? Matías Almeyda deja de ser entrenador del Sevilla FC.
— Sevilla Fútbol Club (@SevillaFC) March 23, 2026
Le agradecemos su labor y le deseamos lo mejor en sus próximos retos profesionales.
Athugasemdir




