Italiano hættir með Fiorentina (Staðfest) - Með munnlegt samkomulag við Bologna
Vincenzo Italiano hefur stýrt sínum síðasta leik hjá Fiorentina, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25149 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Vincenzo Italiano hefur stýrt sínum síðasta leik hjá Fiorentina, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Bjarki Steinn BJarkason og Mikael Egill Ellertsson, leikmenn Venezia, eru komnir upp í Seríu A eftir að lið þeirra vann 1-0 sigur á Cremonese í úrslitum í umspili B-deildarinnar.
<p>Jose Mourinho er tekinn við tyrkneska liðinu Fenerbahce.</p>
<p>Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari Grindavíkur sem leikur í Lengjudeildinni.</p>
Þýski miðvörðurinn Jerome Boateng er genginn í raðir austurríska félagsins LASK Linz frá Salernitana á Ítalíu.
Þýski þjálfarinn Tim Walter hefur verið ráðinn nýr stjóri Hull City í ensku B-deildinni.
Úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani hefur tilkynnt að hann hefur spilað sinn síðasta landsleik á sínum ferli. Hann tilkynnir þetta þremur vikum áður en Copa America hefst, hann verður ekki með á mótinu. Cavani er 37 ára og hefur verið fastamaður í landsliðinu í tæpa tvo áratugi. Marcelo Bielsa valdi Cavani í hópinn fyrir mótið í sumar en Cavani verður ekki með.
Ítalska félagið Roma hefur virkjað ákvæði um kaup á Spánverjanum Angelino frá RB Leipzig fyrir 5 milljónir punda. Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth reyndi að fá þennan 27 ára varnarmann en mistókst það. Hans vilji var að fara til Roma. Roma nýtti sér ákvæði um að kaupa Angelino alfarið frá RB Leipzig fyrir 5 milljónir evra.
Systkinin Sunna Rún Sigurðardóttir og Ingi Þór Sigurðsson eru búin að framlengja samninga sína við uppeldisfélagið ÍA um tvö ár. Þeir gilda báðir út leiktímabilið 2026.
Ipswich Town, sem verða nýliðar í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili, hafa gefið út yfirlýsingu þar sem staðfest er að Kieran McKenna sé búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið. <i>„Sú ábyrgð að leiða þetta lið út í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í meira en 20 ár er eitthvað sem ég vildi ekki missa af,"</I> segir McKenna, sem var mjög eftirsóttur.
Daninn Johannes Hoff Thorup er hættur sem stjóri Nordsjælland og búinn að taka við stjórnartaumunum hjá Norwich í ensku Championship-deildinni. Hann skrifaði undir þriggja ára samning. Thorup er 35 ára og tekur við af David Wagner sem var rekinn eftir að Norwich tapaði gegn Leeds í umspili Championship-deildarinnar. <i>„Ég er spenntur og vona að stuðningsmenn séu það líka. Ég er með mínar hugmyndir en mun líka hlusta á það góða sem hefur verið gert áður. Ég legg áherslu á samvinnu,"</i> segir Thorup
Kamerúnska fótboltasambandið hefur rekið þjálfarann Marc Brys úr starfi áður en hann fékk að stýra landsliði Kamerún í fyrsta sinn.
Katarska félagið Al-Arabi er búið að kveðja Aron Einar Gunnarsson eftir fjögurra ára samleið.
Ítalski varnarjaxlinn Leonardo Bonucci er búinn að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril sem atvinnumaður í fótbolta.
Kvennalið Chelsea er eitt af bestu liðum heims en var að missa þjálfarann sinn, Emma Hayes, yfir til bandaríska landsliðsins.
Vincent Kompany hefur skrifað undir þriggja ára samning sem stjóri Bayern München. Þessi 38 ára Belgi tekur við af Thomas Tuchel og lætur af störfum hjá Burnley eftir að félögin komust að samkomulagi um bótagreiðslur upp á 10 milljónir punda.
Barcelona hefur ráðið Hansi Flick, fyrrum stjóra Bayern München og fyrrum landsliðsþjálfara Þýskalands, sem nýjan stjóra. Hann gerir tveggja ára samning. Flick var rekinn af þýska sambandinu í september 2023 og tekur við Börsungum af Xavi sem var rekinn í síðustu viku.
Bournemouth hefur gengið frá kaupum á tyrkneska sóknarmanninum Enes Unal frá Getafe fyrir um 13 milljónir punda. Þessi 27 ára leikmaður lék á lánssamningi hjá Bournemouth seinni hluta tímabilsins og skoraði tvisvar í sautján leikjum. Unal hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við félagið. Þess má geta að hann er í tyrkneska landsliðshópnum fyrir EM 2024.
Timo Werner mun spila áfram með Tottenham á næstu leiktíð eftir að félagið tryggði sér hann aftur á lánssamningi frá RB Leipzig.
Enski bakvörðurinn Luke Ayling hefur fengið varanleg félagaskipti til Middlesbrough frá Leeds United.