Eggert Aron missir þjálfarann til Aberdeen (Staðfest)
Aberdeen hefur staðfest ráðningu á Jimmy Thelin sem nýjum aðalþjálfara liðsins. Hann mun yfirgefa Elfsborg í sumar til að flytja til Skotlands.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25150 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Aberdeen hefur staðfest ráðningu á Jimmy Thelin sem nýjum aðalþjálfara liðsins. Hann mun yfirgefa Elfsborg í sumar til að flytja til Skotlands.
Elíza Gígja Ómarsdóttir mun leika með Aftureldingu í sumar á láni frá uppeldisfélagi sínu Víkingi R.
Valur tilkynnti í dag að það væri búið að lána þrjá efnilega leikmenn úr leikmannahópnum til annarra félaga. Tvær þeirra eru fæddir árið 2006. Það eru þær Kolbrá Una Kristinsdóttir og Glódís María Gunnarsdóttir. Kolbrá Una, sem á að baki 24 leiki fyrir yngri landsliðin, fer á láni til Gróttu í Lengjudeildinni og Glódís María, sem á að baki átta leiki fyrir yngri landsliðin, fer til Hauka í 2. deild. Kolbrá lék sex leiki með Gróttu á síðasta tímabili og Glódís lék með KH.
Brasilíski kantmaðurinn Felipe Anderson verður samningslaus eftir tímabilið með Lazio í efstu deild ítalska boltans og ætlar ekki að gera nýjan samning við félagið.
Jóhannes Karl Guðjónsson er búinn að skrifa undir framlengingu á samningi sínum sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla, sem gildir nú út nóvember 2025.
Betur fór en á horfðist þegar Sveindís Jane fór af velli með tárin í augunum eftir ljótt brot gegn Þýskalandi. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 mest lesnu fréttir síðustu viku.
Bayer Leverkusen er þýskur deildarmeistari í fyrsta sinn í 119 ára sögu félagsins.

Eyþór Aron Wöhler er genginn í raðir KR en þetta staðfesti félagið rétt í þessu. Eyþór kemur til liðsins frá Breiðablik.

Miðjumaðurinn Birna Kristín Eiríksdóttir er gengin í raðir Fram frá Fylki en hún kemur að láni út tímabilið.
Knattspyrnudeild Víkings hefur samið við bandaríska varnarmanninn Ruby Diodati um að spila með liðinu á komandi tímabili.
Kristján Snær Frostason skrifaði á dögunum undir nýjan samning við HK sem gildir út tímabilið 2025. Fyrri samningur hans rann út eftir síðasta tímabil. Kristján Snær er unglingalandsliðsmaður sem fæddur er árið 2005. Hann var með U19 landsliðinu í undankeppni EM í nóvember. Alls á hann að baki átta leiki með yngri landsliðunum.
Leiknir er að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Þorsteinn Emil Jónsson er genginn í raðir félagsins. Hann skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026. Þorsteinn Emil er tvítugur miðjumaður sem kemur frá Val þar sem hann hafði verið frá árinu 2022. Samningur hans við Val átti að renna út í lok tímabilsins 2024.
Newcastle hefur náð samkomulagi við Joelinton um nýjan langtímasamning við félagið. Ekki er opinberað hvenær nýi samningurinn rennur út. Fyrri samningur hefði runnið út sumarið 2025. Nýi samningurinn gerir hann að einum af launahæstu leikmönnum félagsins.
Toby King, sem lék með Vestra sumarið 2022, er mættur aftur til félagsins. Hann fékk félagaskipti í Vestra í dag. King kemur til Vestra frá Banik Ostrava B sem spilar í þriðju efstu deild Tékklands. Hann yfirgaf félagið í upphafi árs.
Grótta hefur fengið miðjumanninn Tómas Orra Róbertsson á láni frá Breiðabliki út tímabilið. Samningur hans við Breiðablik gildir út tímabilið 2025. Tómas, sem verður tvítugur seinna í mánuðinum, lék með Grindavík á láni á síðasta tímabili. Þar skoraði hann eitt mark í 20 deildarleikjum.
ÍA tilkynnti á dögunum að Juliana Marie Paoletti hefði samið við félagið út komandi tímabil. Hún er fædd árið 2001. „Juliana er góður sóknarsinnaður leikmaður, hún er klók með gott auga fyrir spili ásamt því að vera góð að klára færin sín," segir í tilkynningu ÍA. Hún kemur úr Bandaríska háskólaboltanum þar sem hún spilaði með Saint Mary Catholic Central. Þar spilaði hún á 5 tímabilum 72 leiki, skoraði í þeim 38 mörk og var fyrirliði síns liðs. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir ÍA á föstudag þegar ÍA gerði 2-2 jafntefli við Aftureldingu í B-deild Lengjubikarsins.
Payton Woodward hefur skrifað undir samning við HK og mun hún spila með liðinu á komandi tímabili. Hún er 23 ára markvörður frá Bandaríkjunum. Payton spilaði í háskólaboltanum í heimalandinu fyrir University of Arkansas og Villanova University.
Jón Ívan Rivine, sem samdi við Fylki til tveggja ára fyrir síðasta tímabil, hefur yfirgefið félagið - samningur hans við Fylki er ekki lengur í gildi. Jón var varamarkvörður fyrir Ólaf Kristófer Helgason í fyrra en var ekkert í leikmannahópnum í aðdraganda mótsins í ár.
Víðir Freyr Ívarsson mun annað tímabilið í röð spila með Hetti/Hugin í 2. deildinni. Hann lék með liðinu í fyrra á láni frá HK en nú kemur hann til H/H frá Fram. Samningur hans við Fram gildir út árið 2025. Víðir, sem skoraði fimm mörk fyrir H/H síðasta sumar, samdi við Fram í vetur.
Haukar halda áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í 2. deild. Fyrr í vetur höfðu þeir Frosti Brynjólfsson, Ernest Slupski og Finnbogi Laxdal ásamt Djordje Biberdzic. Nú hefur Oliver James Kelaart Torres fengið leikheimild með liðinu en hann lék með Njarðvík í fyrra.

29.04.2021 15:00
Keyrði fram og til baka frá Blönduósi til Keflavíkur í nokkra daga