Sigurður Gunnar lánaður frá Stjörnunni í HK (Staðfest)
Varnarmaðurinn Sigurður Gunnar Jónsson hefur verið lánaður frá Stjörnunni í HK fyrir komandi tímabil og mun því spila í Kópavoginum þetta árið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25093 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Varnarmaðurinn Sigurður Gunnar Jónsson hefur verið lánaður frá Stjörnunni í HK fyrir komandi tímabil og mun því spila í Kópavoginum þetta árið.
FHL hefur samið við tvo bandaríska leikmenn fyrir komandi sumar í Lengjudeildinni.
Viktoría Diljá Halldórsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu tveggja ára. Viktoría, sem er fædd árið 2004, er uppalin í Haukum og er að koma heim aftur á Ásvelli frá Fylki þar sem hún spilaði meðal annars í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.
Carney Chukwuemeka, leikmaður Borussia Dortmund, hefur fengið leikheimild með austurríska landsliðinu fyrir HM í sumar. Chukwuemeka var talinn eitt mesta efni Englendinga en hann kemur úr akademíu Chelsea og lék fyrir yngri landslið Englands, frá U17 til U20.
Halldór Jón Sigurður Þórðarson er genginn í raðir ÍBV á nýjan leik. Hann kemur til ÍBV frá Fylki og skrifar undir tveggja ára samning í Eyjum. Hann lék með ÍBV tímabilin 2022 og 2023 áður en hann hélt í Árbæinn. Hann er uppalinn hjá Fram og hefur einnig leikið með Hetti, Aftureldingu, Víkingi, ÍR, Gróttu, ÍBV og Fylki á sínum ferli. Hann er sóknarmaður sem fæddur er 1996. Hann skoraði fimm mörk í 27 deildarleikjum með Fylki. Meiðsli settu strik í reikinginn á síðasta tímabili.
Tvöroyrar Bóltfelag, betur þekkt sem TB, var að krækja í afar öflugan liðsstyrk úr röðum Vestra.
Fram var að kynna til leiks tvo nýja leikmenn sem munu leika með meistaraflokki kvenna komandi sumar.
Benedikt Þór Viðarsson er búinn að skipta yfir til Ægis og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Þýska stórveldið Borussia Dortmund er búið að staðfesta yfirvofandi brottför Julian Brandt frá félaginu á frjálsri sölu.
Ryan Gravenberch, einn af lykilmönnum Liverpool, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2023, en félagið greinir frá þessu í dag.
Marokkóska fótboltasambandið hefur staðfest stórfelldar breytingar innan karlalandsliðsins þar sem Walid Regragui er hættur störfum eftir tap í úrslitaleik Afríkukeppninnar í janúar.
Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur gengið í raðir Corinthians í Brasilíu og skrifaði undir samning út tímabilið, þar til í desember. Þessi 33 ára leikmaður hefur verið félagslaus síðan hann yfirgaf Seúl í lok síðasta árs. Hann var orðaður við bandarísku MLS-deildina en er kominn til Sao Paulo þar sem hann mun klæðast treyju 77. <i>„Það var vel tekið á móti mér á flugvellinum. Ástríðufullir stuðningsmenn sungu. Leikmenn tóku mér með opnum örmum og ég er hæstánægður. Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir félagið,"</i> segir Lingard. Lingad gekk í raðir FC Seoul í febrúar 2024 eftir að hafa verið félagslaus í sjö mánuði. Árinu á undan hafði hann verið hjá Nottingham Forest. Lingard á 232 leiki að baki með Manchester United og hefur lyft FA-bikarnum, deildabikarnum og Evrópudeildarbikarnum. Þá hefur hann leikið 32 landsleiki fyrir England. Hjá Corinthians hittir hann aftur gamlan liðsfélaga hjá Manchester United, Memphis Depay. Dorival Júnior, fyrrum landsliðsþjálfari Brasilíu, stýrir liðinu og hefur það hlotið sjö stig úr fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.
Markús Páll Ellertsson er genginn til liðs við ÍA, kemur á frjálsri sölu til Skagamanna frá Triestina á Ítalíu. Markús Páll gerir fjögurra ára samning við ÍA. Hann á að baki fjóra leiki með U19 landsliðinu. Sóknarmaðurinn er fæddur árið 2006 og er uppalinn hjá Fram. Eftir tímabilið 2024 samdi hann við ítalska félagið en hefur lítið spilað með aðaliðinu. Markús er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils sem spilar með Genoa á Ítalíu. Hann kom til móts við nýju liðsfélaga sína í gær en Skagamenn eru í æfingaferð á Tenerife. Markús Páll er fimmti leikmaðurinn sem ÍA krækir í þennan veturinn áður höfðu þeir Böðvar Böðvarsson, Guðmundur Þórarinsson, Gísli Eyjólfsson og Rafael Máni Þrastarson samið við félagið. Markús gæti spilað sinn fyrsta leik með ÍA á sunnudag þegar liðið mætir KR á Tenerife á sunnudag.
Tindastóll er búið að finna nýjan þjálfara fyrir kvennaliðið eftir að Svanberg Óskarsson lét af störfum í síðasta mánuði. Spánverjinn Juan Carlos Dominguez Requena, eða Domi, er tekinn við liðinu. Domi er Tindastóli vel kunnugur, hann bæði þjálfaði yngri flokka og spilaði með meistaraflokki karla í áraraðir. Í tilkynningu Tindastóls setir að framundan er mikið uppbyggingarstarf og Domi er sagður spenntur fyrir að taka þátt í því.
Atli Þór Jónasson er genginn til liðs við Fram á láni frá Víkingi. Hann var eftirsóttur en Fram hefur unnið baráttuna. Atli gekk til liðs við Víking frá HK fyrir síðasta tímabil en hann hafði spilað með HK í Bestu deildinni 2023 og 2024. Hann náði hins vegar ekki að festa sig í sessi hjá Víkingi en hann kom við sögu í ellefu deildarleikjum og skoraði eitt mark.
Víkingur hefur samið við bandaríska markvörðinn Grace McClellan um að leika með liðinu í Bestu deild kvenna í sumar.
Rúrik Gunnarsson er genginn í raðir Leiknis í Breiðholti og mun spila með liðinu í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Höttur á Egillsstöðum hefur gengið frá félagaskiptum fyrir þrjá leikmenn sem munu spila með liðinu í 3. deildinni í sumar.
Camily Kristal Silva da Rocha hefur skrifað undir samning til næstu tveggja ára við Víking. Hún kemur í Fossvoginn úr Laugardalnum þar sem hún var hjá Þrótti. Í frétt á heimasíðu Víkings er talað um hana sem ungan og ferskan leikmann sem getur bæði spilað í bakverðinum og á kantinum.
Sóknarmaðurinn Michail Antonio segist hafa þurft að kyngja stoltinu eftir að hafa sloppið lifandi úr bílslysi. Hann býr sig nú undir að spila sinn fyrsta félagsliðaleik í fimmtán mánuði. Antonio er 35 ára og hefur skrifað undir hjá Al-Sailiya í Katar. Antonio var heppinn að láta ekki lífið í slysinu í desember 2024 þegar Ferrari bifreið hans lenti utan vegar og á tré. Hann meiddist á fæti og hefur átt í vandræðum með að finna sér félag. Hann kom af bekknum í þremur leikjum með jamaíska landsliðinu í júní í fyrra.