07.08.26 - 09:54
Kári Snorrason
Bjarki Steinn til FCS (Staðfest) - Skrifar undir þriggja ára samning

Südtirol er nyrst á Ítalíu við landamæri Austurríkis.

Mynd: FCS

Bjarki Steinn Bjarkason er genginn í raðir ítalska félagsins Südtirol (FCS) frá Venezia. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
FCS leikur í ítölsku B-deildinni og endaði liðið í 16. sæti á síðasta tímabili. Venezia vann deildina.
Bjarki var í stóru hlutverki hjá Venezia á fyrri hluta tímabilsins en meiðsli settu strik í reikninginn og komu í veg fyrir að hann spilaði meira.

Bjarki Steinn, sem er 26 ára, hefur verið hjá Venezia síðan 2020 en þá var hann keyptur frá ÍA. Hann er fjölhæfur leikmaður, getur bæði spilað miðsvæðis og í hægri bakverði.
Bjarki á að baki sjö A-landsleiki og var síðast í landsliðinu í nóvember í fyrra.