Fotbolti.net
07.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Ipswich selur Burns til Leicester (Staðfest)

Ipswich selur Burns til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Leicester City

Nýliðar Ipswich Town hafa selt vængbakvörðurinn Wes Burns til Leicester City í C-deildinni.
Burns er 31 árs gamall og hefur leikið með Ipswich undanfarin fimm ár. Hann kom til félagsins árið 2021 þegar það var í C-deildinni og hefur síðan þrisvar fagnað því að komast upp um deild.

Hann lék í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn tímabilið 2024-2025 og kom þá við sögu í átján leikjum áður er Ipswich féll aftur niður í B-deildina. Burns lék síðan átján deildarleiki á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á ný.

Hann kveður nú Ipswich eftir viðburðarík og farsæl fimm ár og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Leicester í C-deildinni.

Burns tekur því að sér nýtt verkefni hjá félagi sem hefur fallið um tvær deildir á jafnmörgum árum. Þetta er staða sem hann þekkir og er markmiðið að koma liðinu aftur á réttu brautina eftir erfiðan kafla.

Burns á að baki tíu A-landsleiki fyrir Wales en missti naumlega af sæti í landsliðshópnum fyrir Evrópumótið árið 2016.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.