Fotbolti.net
07.08.26 - 22:12
Hafþór Örn Laursen

Ray Anthony: Við sváfum á verðinum

Auglýsing
Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur

Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Grindavík fór í heimsókn til Aftureldingar í kvöld í 17. umferð Lengjudeildarinnar og fengu þar skell, 4-1 tap. Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, var fenginn í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Afturelding 4 - 1 Grindavík
„Mér líður mjög illa. Við sváfum á verðinum fyrsta korterið þar sem við fáum þrjú mörk á okkur og tvö úr föstum leikatriðum.''

„Við þurfum oft mark á okkur til að vakna en núna þurftum við fjögur. Í seinni var meira líf í okkur og við þurfum að byrja leiki af fullum krafti í staðinn fyrir að bíða eftir að elta leikinn.''

Grindavík kynntu þrjá nýja leikmenn, þá Ibra Camara, Aron Skúla Brynjarsson og Arnar Breka Gunnarsson, en þeir komu allir við sögu í leiknum í kvöld.
Grindavík fékk þrjá á lokadeginum (Staðfest)
TENGT EFNI

Grindavík fékk þrjá á lokadeginum (Staðfest)



„Þeir eru að koma vel inn. Það tók okkur kannski fyrri hálfleikinn til að fatta hvernig leikmaður Ibra er og við föttuðum það í seinni og sáum hve góður hann er.''

Athyglisvert var að það voru sænskir dómarar sem dæmdu þennan leik en það er í gegnum norrænt skiptidómaraverkefni hjá KSÍ.
Sænskir og danskir dómarar í Lengjudeildinni í kvöld
TENGT EFNI

Sænskir og danskir dómarar í Lengjudeildinni í kvöld



„Mér fannst þeir ekki mikið öðruvísi en íslensku dómararnir, þeir hefðu þó mátt leyfa aðeins meiri hörku og leyfa leiknum að fljóta. Stundum er í lagi að leyfa leikmönnum aðeins að takast á.''

Næsti leikur Grindavíkur er gegn Þrótti á Stakkavíkurvelli í Grindavík 13. ágúst.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.