Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25093 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.02.2026, 15:06

Sverrir Páll í FH (Staðfest) - „Teljum að enn meira búi í honum"

Sverrir Páll Hjaltested hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH. Framherjinn kemur til félagsins frá ÍBV þar sem hann hefur spilað síðustu ár. Sverrir er 25 ára og átti nokkuð gott tímabil með ÍBV í fyrra. Hann skoraði sex mörk í Bestu deildinni og lagði upp eitt í fjórtán byrjunarliðsleikjum. Meiðsli settu sitt strik á undirbúningstímabilið, hann virtist ekki í stóru hlutverki í byrjun móts en það stækkaði til muna þegar Omar Sowe sleit krossband nokkuð snemma móts. Sverrir kom til ÍBV frá Val fyrir tímabilið 2023 og var því að klára sitt þriðja tímabil í Eyjum. Hann skoraði sex deildarmörk á öllum tímabilunum í Eyjum.

FRÉTTIR18.02.2026, 09:30

Juan Guardia í Völsung (Staðfest) - „Hilmir snýr heim"

Juan Guardia skrifaði í gær undir samning við Völsung og er hann að mæta aftur á Húsavík eftir eins árs veru hjá Þór. Hann er uppalinn hjá Atletico Madrid og kom til Völsungs fyrir tímabilið 2023. Hann hjálpaði Völsungi að komast upp úr 2. deild 2024 og skipti svo í Þór. Spænski varnarmaðurinn, sem bæði getur spilað sem bakvörður og miðvörður, skoraði þrjú mörk í 16 leikjum þegar Þór vann Lengjudeildina.

FRÉTTIR18.02.2026, 06:00

Emma Björt í KR (Staðfest)

Emma Björt Arnarsdóttir hefur skrifað undir samning við KR sem gildir út næsta tímabil. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vesturbæjarstórveldinu. Emma Björt, sem er fædd árið 2006, er miðjumaður sem hefur spilað yfir 70 meistaraflokksleiki fyrir FH, ÍH, Fram, Fylki og Grindavík. Hún er uppalin í FH en spilaði á síðasta tímabili með Grindavík/Njarðvík og Fylki í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR17.02.2026, 17:11

Birkir Már skiptir yfir í KH (Staðfest)

Birkir Már Sævarsson hefur fengið félagaskipti yfir í KH og er orðinn gjaldgengur með félaginu. Valsarinn varð 41 árs í nóvember síðastliðnum og tók árið 2024 sitt síðasta tímabil með uppeldisfélaginu, Val.

FRÉTTIR17.02.2026, 14:54

Saka framlengir (Staðfest) - Orðinn launahæsti leikmaður Arsenal

Bukayo Saka hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Arsenal. Þetta fullyrðir <i>BBC</I> og samkvæmt þeirra heimildum er hann orðinn launahæsti leikmaður félagsins og fær meira en 300 þúsund pund í vikulaun. Viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir í talsverðan tíma. Saka er fæddur í Londong og uppalinn hjá Watford og Arsenal. Hann er 24 ára vængmaður sem spilaði sína fyrstu leiki með aðalliði Arsenal veturinn 2018-19. Hann hefur skorað 77 mörk í 296 leikjum með Arsenal og 14 mörk í 48 landsleikjum.

FRÉTTIR17.02.2026, 12:18

Bröndby kaupir Marten Leon af HK (Staðfest)

Danska stórliðið Bröndby hefur fest kaup á Marten Leon Jóhannssyni hjá HK. Marten Leon er fæddur árið 2010 og hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska stórliðið. Markvörðurinn er uppalinn hjá HK og hefur verið undir smásjá Bröndby síðustu misseri. Hann gengur formlega í raðir Bröndby í júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar. Hann á að baki sex leiki fyrir unglingalandsliðin. Hann lék með 3. flokki HK síðasta sumar, lék einn leik í 2. flokki og var í hóp í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR17.02.2026, 12:11

Helgi Snær í Fjölni (Staðfest)

Helgi Snær Agnarsson er genginn til liðs við Fjölni. Hann kemur til félagsins eftir að hafa spilað með KFG síðasta sumar. Hann þekkir vel til hjá Fjölni, hefur bæði spilað með Fjölni og venslaliðinu Vængjum Júpíters. Hann varð bikarmeistari með 2. flokki Fjölnis 2018 og vann 4. deildina með Vængjum 2023.

FRÉTTIR17.02.2026, 10:45

Logi Hrafn til Värnamo (Staðfest) - Samningur til 2028

Logi Hrafn Róbertsson er genginn í raðir sænska liðsins Värnamo frá króatíska félaginu NK Istra. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Félagið féll niður úr efstu deild Svíþjóðar á síðasta tímabili og tók Srdjan Tufegdzic, Túfa, við þjálfun liðsins í vetur. Greint hefur verið frá því að kaupverðið sé í kringum 29 milljónir íslenskra króna.

FRÉTTIR16.02.2026, 13:16

Breiðablik kaupir Ívar Örn (Staðfest)

KA tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði selt Ívar Örn Árnason til Breiðabliks. Breiðablik tilkynnti á sama tíma um kaup á Ívari. Fótbolti.net greindi frá tilboði frá Breiðabliki í Ívar á fimmtudag í síðustu viku. Fjallað hefur verið um að kaupverðið sé um 15 milljónir króna, en það er óstaðfest upphæð. Samningur Ívars hefði runnið út eftir komandi tímabil. Ívar er uppalinn KA maður sem tók við fyrirliðabandinu hjá KA fyrir tímabilið 2025. Hann er örvfættur miðvörður sem verður þrítugur seinna á þessu ári. Ívar leiddi Akureyrarliðið til bikarmeistaratitils árið 2024 og átti stóran þátt í góðu Evrópugengi liðsins árið á undan. Hann hefur verið lykilmaður í liði KA síðustu tímabil.

FRÉTTIR16.02.2026, 09:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Arnar útskýrir valið

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Margir hafa skoðun á landsliðshópnum sem mætir Mexíkó, ungstirni fer á kostum á æfingum KR og sá hárprúði heldur áfram að safna.

FRÉTTIR15.02.2026, 11:02

Jónatan Ari í Gróttu (Staðfest)

Grótta heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en félagið hefur fengið til sín varnarmanninn Jónatan Ara Bragason frá Leikni.

FRÉTTIR14.02.2026, 16:00

Patryk skiptir til Fjölnis (Staðfest)

Varnarmaðurinn Patryk Hryniewicki er búinn að skrifa undir samning við Fjölni eftir að hafa leikið fyrir uppeldisfélag sitt í Lengjudeildinni á undanförnum árum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.