Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir er nýr leikmaður FH og gerir hún þriggja ára samning við félagið.
Hún kemur til FH frá nágrönnunum í Haukum.
Hún kemur til FH frá nágrönnunum í Haukum.
Elín Björg, sem fædd er árið 2003, er sóknarmaður sem uppalin er hjá Haukum. Hún steig þar ung upp í meistaraflokkinn en skipti yfir til FH árið 2021.
Hún lék með FH til 2023 en skipti aftur til Hauka fyrir tímabilið 2024. Elín skoraði þá 27 mörk í 18 leikjum er Haukar komust upp úr 2. deild.
Í fyrra gerði hún svo sjö mörk í 18 leikjum í Lengjudeildinni, en hún er núna mætt aftur í Bestu deildina.
„Elín er sterkur framherji og mikill liðsmaður sem lék með FH árin 2021–2023 og þekkir því vel til í Kaplakrika. Það er mikið gleðiefni að fá hana aftur heim í FH," segir í tilkynningu frá Fimleikafélaginu sem ætlar sér væntanlega að berjast um Íslandsmeistaratitilinn næsta sumar.
Athugasemdir


