Logi Hrafn Róbertsson er genginn í raðir sænska liðsins Värnamo frá króatíska félaginu NK Istra. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Félagið féll niður úr efstu deild Svíþjóðar á síðasta tímabili og tók Srdjan Tufegdzic, Túfa, við þjálfun liðsins í vetur. Greint hefur verið frá því að kaupverðið sé í kringum 29 milljónir íslenskra króna.

„Það er frábær tilfinning að vera kominn hér til Värnamo. Ég er afar þakklátur fyrir þetta tækifæri og mjög ánægður að vera kominn hingað. Allir sem ég hef hitt hingað til hafa verið afar vingjarnlegir og tekið mér vel.
Ég held að IFK Värnamo geti verið gott næsta skref í minni þróun og vonandi fæ ég mikinn spiltíma. Viðræðurnar við félagið áður en gengið var frá samningnum gáfu mér einnig mjög góða tilfinningu,“ segir Logi í samtali við heimasíðu Värnamo.
Logi gekk til liðs við NK Istra fyrir rúmu ári síðan frá FH en tækifærin í Króatíu voru af skornum skammti. Danijel Dejan Djuric var liðsfélagi hans hjá Istra, en hann er sömuleiðis á leið frá félaginu og er að ganga í raðir Zeljeznicar Pancevo í Serbíu á láni.
Athugasemdir