Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
banner
   mán 16. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
ÍR fær bakvörð frá Vestra (Staðfest) - Efnilegir skrifa undir
Kvenaboltinn
Mynd: ÍR
ÍR er búið að kynna til leiks nýjan leikmann sem kemur til félagsins úr röðum Vestra.

Sæunn Lív Christophsdóttir Weigl er búin að skrifa undir samning en hún leikur sem bakvörður að upplagi.

Sæunn er fædd 2006 og á ellefu leiki að baki með Vestra í 2. deild kvenna.

Þá eru Nischal Smári Gurung og Óskar Andri Sigurðsson búnir að gera samninga við félagið.

Nischal er fjölhæfur kantmaður fæddur 2008 sem gerir tveggja ára samning. Hann lék sex keppnisleiki með Létti í fyrra.

Óskar Andri er hafsent sem getur einnig spilað aftarlega á miðjunni. Hann er fæddur 2010 og gerir þriggja ára samning við meistaraflokk.

Óskar hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands og var valinn í Reykjavíkurúrvalið fyrir tveimur árum. Hann á þó ekki keppnisleik að baki fyrir yngri landsliðin.

ÍR leikur áfram í Lengjudeild karla eftir að hafa rétt misst af umspilssæti fyrir Bestu deildina í fyrra.


Athugasemdir
banner
banner
banner