Karólína Dröfn Jónsdóttir er gengin til liðs við Hauka frá Aftureldingu og Anna Rut Ingadóttir hefur framlengt samning sinn við félagið.
Tilkynning Hauka:
Karólína, sem er fædd árið 2005, er uppalin hjá Einherja á Vopnafirði. Karólína er framherji og hefur skorað 31 mörk í 93 leikjum með meistaraflokki. Hún kemur til liðs við okkur frá Aftureldingu.
„Karó er öflugur framherji með mikið markanef og er gríðarlega dugleg inná vellinum,” segir Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna. „Hún hefur staðið sig mjög vel með okkur í vetur og skorað í flestum æfingarleikjunum sem hún hefur spilað í.”
Anna Rut, sem er fædd árið 2006, er uppalin í Haukum og á að baki 95 leiki með meistaraflokki kvenna þar sem hún hefur verið lykil leikmaður í hjarta varnarinnar.
„Anna Rut hefur verið algjör lykilmaður í okkar liði undanfarin tímabil. Hún er virkilega öflug varnarlega og einnig mjög góð með boltann í uppspilinu,” segir Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna.
Við erum mjög ánægð með að halda áfram að vinna með Önnu næstu árin, enda er hún frábær karakter og liðsfélagi.
Athugasemdir

