Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
banner
   þri 17. febrúar 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bjarki Flóvent á Selfoss (Staðfest)
Mynd: Selfoss
Bjarki Flóvent Ásgeirsson hefur skrifað undir samning við Selfoss. Hann kemur til liðsins frá Álftanesi.

Tilkynning félagsins
Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við Bjarka Flóvent Ásgeirsson út árið 2026.

Bjarki er 25 ára gamall en hann getur leyst allar miðjustöður. Hann er uppalinn á Álftanesi en flutti sig síðar yfir til Stjörnunnar. Í meistaraflokki hefur hann leikið með Sindra, KFG og nú síðast Álftanesi.

Hann var í byrjunarliði Selfoss sem vann Reyni S. í 1. umferð Lengjubikarsins í síðustu viku. Velkominn á Selfoss, Bjarki!



Athugasemdir
banner