Grótta heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en félagið hefur fengið til sín varnarmanninn Jónatan Ara Bragason frá Leikni.
Jónatan er 19 ára gamall örvfættur leikmaður sem er alinn upp í Danmörku þar sem hann lék með AB Tårnby og AB Gladsaxe áður en hann flutti til Íslands í fyrra.
Hann lék 5 leiki og skoraði 2 mörk með 2. flokki Leiknis síðasta sumar en er nú farinn þaðan og hefur samið við Gróttu.
Jónatan lék sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í 3-1 tapi gegn ÍA á miðvikudag og síðan aftur er liðið laut í lægra haldi fyrir Þór, 3-1, í gær.
„Það er frábær tilfinning að vera kominn í Gróttu og ég er gríðarlega ánægður með þetta skref. Þetta er metnaðarfullt félag og verkefni sem ég er spenntur að vera hluti af,“ sagði Jónatan við undirskrift.
Magnús Örn Helgason, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu, segir það mikið gleðiefni að hafa landað Jónatani.
„Jónatan hefur æft með meistaraflokki í allan vetur og það er gleðiefni að hann hafi nú skrifað undir samning við félagið. Jónatan er tæknilega góður, skilur varnarleikinn vel og hefur ekki síst mjög jákvætt hugarfar. Við hlökkum til að vinna með honum áfram og vonandi mun hann blómstra í bláu treyjunni,“ sagði Magnús um Jónatan.
Athugasemdir



