Hlynur Sævar í Fylki (Staðfest)
Hlynur Sævar Jónsson er genginn í raðir Fylkis í Lengjudeildinni, en hann kemur til félagsins frá ÍA.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25100 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Hlynur Sævar Jónsson er genginn í raðir Fylkis í Lengjudeildinni, en hann kemur til félagsins frá ÍA.
Aron Jóhannsson, sem leystur var undan starfsskyldum hjá Val fyrr í vetur, hefur verið orðaður við Grindavík. Aron er enn á samningi hjá Val, en hefur verið beðinn um að mæta ekki á æfingar. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur aðili tengdur Grindavík heyrt í aðila tengdum Val varðandi möguleikann að fá Aron. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Óla Þórleifsson, formann fótboltadeildar Grindavíkur, í dag.
Kári Kristjánsson hefur verið kynntur sem nýr leikmaður FH. Kári hefur undanfarin ár verið einn besti leikmaður Lengjudeildarinnar þar sem hann spilaði fyrir Þrótt. Jóhannes Karl Guðjónsson, nýr þjálfari FH, er að styrkja lið sitt fyrir komandi sumar og er að vinna í því að yngja hópinn. Kári er 21 árs gamall. Hér að neðan má sjá tilkynningu FH.
Grindavík kynnti til leiks fjóra nýja leikmenn í gær fyrir átökin í Lengjudeildinni næsta sumar. Stefán Jón Friðriksson, Valur Þór Hákonarson, Rúnar Ingi Eysteinsson og Robert Blakala skrifuðu undir samninga við félagið. Þá framlengdi Viktor Guðberg Hauksson samning sinn við félagið.
Bjarni Aðalsteinsson mun yfirgefa KA og spila með liði í dönsku C-deildinni á næstu leiktíð, félagið greindi frá tíðindunum fyrir skömmu en upplýsti ekki hvaða félag hann gengur til liðs við. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net fer Bjarni til Roskilde. Liðið er í þriðja sæti dönsku C-deildarinnar nú þegar deildin er hálfnuð. Roskilde féll úr fyrstu deildinni í vor. Bjarni er 26 ára miðjumaður sem er uppalinn hjá KA, hann hefur spilað 149 leiki fyrir félagið. Hann spilaði 26 leiki í Bestu deildinni á síðasta tímabili. Bjarni bjó í Danmörku síðasta vetur ásamt kærustu sinni sem er í námi í Danmörku.
Ísak Daði Ívarsson er genginn í raðir Reynis Sandgerði og búinn að gera tveggja ára samning við félagið.
Keflavík er búið að krækja í Alyssa Yana Daily sem raðaði inn mörkunum með Vestra í sumar.
Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir er gengin til liðs við ÍA eftir þrjú ár með Aftureldingu í Lengjudeildinni.
Leiknir R. hefur samið við Viktor Andra Pétursson sem er fæddur 2004.
Valur er búið að semja við Kristófer Dag Arnarsson sem skiptir yfir til stórveldisins frá uppeldisfélagi sínu, Fjölni.
Dagur Dan Þórhallsson hefur fært sig um set í MLS-deildinni en CF Montreal gerði samkomulag við Orlando City. Orlando fær 500 þúsund Bandríkjadali fyrir Dag en sú upphæð gæti svo hækkað eftir ákvæðum. Dagur Dan gerir samning við Montreal til 2028 með möguleika á framlengingu til 2029,
Markmaðurinn Darri Bergmann Gylfason er genginn í raðir Stjörnunnar en hann kemur til félagsins frá Augnabliki. Hann hefur verið aðalmarkmaður Augnabliks í fjögur tímabil og á að baki 108 KSÍ leiki. Darri Bergmann gerir þriggja ára samning og fylgir Hrannari Boga Jónssyni, nýjum aðstoðarþjálfara Stjörnunnar, úr Kópavoginum en Darri lék undir stjórn Hrannars Boga hjá Augnabliki. Stjarnan lánaði á dögunum markmanninn Aron Dag Birnuson til Þróttar og Darri er svo tilkynntur í kjölfarið. Honum er væntanlega ætlað að veita Árna Snæ Ólafssyni samkeppni um stöðu í liðinu.
Fanndís Friðriksdóttir hefur lagt skóna á hilluna en hún greinir frá ákvörðun sinni á <i>Instagram</I>. Fanndís, sem er 35 ára, var sóknarsinnaður leikmaður sem þreytti frumraun sína í meistaraflokki fyrir 20 árum. Hún er fædd á Akureyri en lék í yngri flokkum með ÍBV áður en hún fór í Breiðablik í 2. flokki. <i>„Takk fyrir mig fòtbolti. Sigrar-Töp og allt það en það sem situr eftir er allt fólkið. Þakklát og stolt af ferlinum. Tek frelsinu fagnandi,"</I> skrifar Fanndís. Hún lék 32 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim tólf mörk. Hún er líka ein af einungis þrettán leikmönnum Íslands sem hafa spilað yfir 100 landsleiki, en alls á Fanndís að baki 110 A-landsleiki og skoraði í þeim 17 mörk. Hún fór á EM með landsliðinu árin 2009, 2013 og 2017. Á EM í Hollandi 2017 skoraði hún eina mark Íslands á mótinu þegar hún kom Íslandi yfir gegn Sviss. 110. leikurinn kom í sumar en þá hafði hún ekki spilað með landsliðinu í fimm ár.
Tryggvi Snær Geirsson er genginn í raðir Þróttar en hann kemur til félagsins eftir sex tímabil með Fram. Miðjumaðurinn á að baki 131 leik í meistaraflokki og hefur í þeim skorað níu mörk. Hann kom einungis við sögu í átta leikjum með Fram í sumar eftir að hafa spilað 20 leiki tímabilið 2024. Hann er uppalinn hjá KR og lék einn leik með KR í efstu deild 2018 og lék svo með KV sumarið 2019 áður en hann hélt í Fram. Þjálfari KV á þeim tíma var Sigurvin Ólafsson, Venni, en hann er í dag þjálfari Þróttar. Hann kom við sögu í 16 leikjum og skoraði tvö mörk þegar lið Fram fór ósigrað upp úr Lengjudeildinni 2021.
Jónatan Ingi Jónsson er búinn að framlengja samning sinn við Val um tvö ár, sem þýðir að hann gildir nú út tímabilið 2029. Tíðindin koma nokkuð á óvart en hann hefur verið orðaður við bæði KR og Víking síðustu vikur.
Fréttir af Mo Salah um helgina komust fljótt á topplista yfir mest lesnu fréttir vikunnar. HM drátturinn og viðtal við Þorlák Árnason er einnig ofarlega á listanum. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Samantha Rose Smith hefur yfirgefið Breiðablik eftir eitt og hálft ár með félaginu.
Spænski miðvörðurinn Sergio Ramos hefur staðfest að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir mexíkóska félagið Monterrey en skórnir fara þó ekki beint upp í hillu.
Auðun Helgason verður áfram með Þrótt Vogum á komandi tímabili en þetta kemur fram í tilkynningu frá Vogamönnum í dag.
Dagur Ingi Valsson er genginn til liðs við Keflavíkur og skrifar undir tveggja ára samning. Hann kemur til liðsins frá KA. Hann er 26 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem er uppalinn hjá Leikni Fáskrúðsfirði. Hann er kominn aftur til Keflavíkur en hann spilaði þar frá 2019 áður en hann gekk til liðs við KA undir lok sumargluggans í fyrra.