01.01.19 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Makalele segir dansandi Pogba sýna vanvirðingu

Paul Pogba.

Mynd: Getty Images

Claude Makalele í baráttu við Thierry Henry.


Paul Pogba.

Mynd: Getty Images
Claude Makalele, fyrrum miðjumaður Chelsea, segir að Paul Pogba sýni andstæðingum sínum vanvirðingu með því hvernig hann fagnar þeim mörkum sem hann skorar.
Pogba hefur verið magnaður síðan Jose Mourinho var rekinn og Ole Gunnar Solskjær tók við.
Pogba virðist vera að blómstra undir stjórn Solskjær en hann var maður leiksins í 4-1 sigri gegn Bournemouth í síðustu umferð. Hann skoraði tvennu og lagði upp eitt.
Eftir bæði mörk sín gegn Bournemouth fagnaði Pogba með því að taka nokkur dansspor og Makalele, sem er í dag stjóri Eupen í Belgíu, er ekki hrifinn.
„Að mínu mati er þetta vanvirðing við andstæðinginn. Þú vinnur 4-1 og ert að dansa fyrir framan mig, það er pirrandi. Ég myndi segja honum að gera þetta inn í búningsklefa," sagði Makalele í samtali við Astro SuperSport.
Paul Pogba under Ole Gunnar Solskjær:
— Statman Dave (@StatmanDave) December 26, 2018
186 minutes played
190 passes
8 shots
6 fouls suffered
5 key passes
4 success dribbles
4 tackles won
3 interceptions
2 assists
2 goals
Phenomenal. 🙌🙌🙌 pic.twitter.com/xJPE9LJGZ5
Pogba virðist vera að blómstra undir stjórn Solskjær en hann var maður leiksins í 4-1 sigri gegn Bournemouth í síðustu umferð. Hann skoraði tvennu og lagði upp eitt.
Eftir bæði mörk sín gegn Bournemouth fagnaði Pogba með því að taka nokkur dansspor og Makalele, sem er í dag stjóri Eupen í Belgíu, er ekki hrifinn.
„Að mínu mati er þetta vanvirðing við andstæðinginn. Þú vinnur 4-1 og ert að dansa fyrir framan mig, það er pirrandi. Ég myndi segja honum að gera þetta inn í búningsklefa," sagði Makalele í samtali við Astro SuperSport.
*Pogba* Goals celebration!🔥😁 pic.twitter.com/PipsyhunMe
— MuhammadSepthio H. (@20Septio) December 30, 2018

Claude Makalele í baráttu við Thierry Henry.

