Fotbolti.net
16.11.26 - 17:41
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu Brynjólf skora annað landsliðsmark sitt - „Eða var þetta mark Orra Steins???“

Brynjólfur fylgdi vel á eftir og gerði annað mark sitt fyrir landsliðið

Brynjólfur fylgdi vel á eftir og gerði annað mark sitt fyrir landsliðið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísinn er brotinn á Laugardalsvelli, en Brynjólfur Andersen Willumsson skoraði sitt annað landsliðsmark þegar hann kom Íslandi í 1-0 gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 2 - 0 Lúxemborg
Íslenska liðið hefur haft góð tök á leiknum og skapað sér nokkur hættuleg færi.

Það hlaut eitthvað að undan láta og loks kom markið á 25. mínútu. Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði landsliðsins, átti þá hörkuskot fyrir utan teig sem fór í slána og niður. Boltinn virtist hafa farið inn fyrir marklínuna, en Brynjólfur tók enga sénsa, fylgdi skotinu eftir og skallaði boltann í netið framhjá markverði Lúxemborgar.

„ÍSINN ER BROTINN!!!!!

Eða var þetta mark Orra Steins???

Orri með HÖRKUSKOT sem fer í slána og niður, mögulega innfyrir línuna? Skiptir allavega ekki máli því Brynjólfur mætti eins og gammur og skallaði boltann inn,“
segir í lýsingu Fótbolta.net.

Þetta var annað landsliðsmark Brynjólfs og það fyrsta í keppnisleik, en hann skoraði sitt fyrsta mark í 2-0 sigri á Hondúras í vináttulandsleik í byrjun árs 2024.

Hægt er að sjá mark Brynjólfs hér fyrir neðan en staðan er nú orðin 2-0 eftir að Andri Lucas Guðjohnsen bætti við öðru úr vítaspyrnu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.