16.11.26 - 17:47
Brynjar Ingi Erluson
Aðeins Kane hefur skorað fleiri mörk en Andri

Andri Lucas skoraði sjötta mark sitt í Þjóðadeildinni

Mynd: KSÍ

Andri Lucas Guðjohnsen hefur bætt við öðru marki Íslands sem leiðir nú 2-0 gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni og stefnir allt í að liðið tryggi sér toppsæti riðilsins í kvöld.

TENGT EFNI
Sjáðu Brynjólf skora annað landsliðsmark sitt - „Eða var þetta mark Orra Steins???“
Brynjólfur Andersen Willumsson kom Íslandi yfir á 25. mínútu þegar hann fylgdi eftir hörkuskoti Orra Steins Óskarssonar sem fór í þverslána.
Aðeins nokkrum mínútum síðar fengu Íslendingar vítaspyrnu þegar Orri átti skot sem fór í hönd varnarmanns gestanna og dómarinn benti á punktinn.
Andri fór örugglega með vítaspyrnu í síðasta leik og steig aftur á punktinn í kvöld. Hann brást ekki bogalistin að þessu sinni heldur og kom Íslandi í 2-0.
Þetta var sjötta mark Andra í Þjóðadeildinni á þessu ári og er hann nú næstmarkahæstur í keppninni ásamt Viktor Gyökeres, leikmanni Arsenal og sænska landsliðsins.
Aðeins Harry Kane hefur skorað fleiri mörk en þeir félagar, en hann er kominn með átta mörk fyrir England.
Þetta var jafnframt 16. landsliðsmark Andra og vantar hann nú aðeins tíu mörk til að jafna föður sinn, Eið Smára Guðjohnsen.
Hægt er að sjá mark Andra hér fyrir neðan.