Fotbolti.net
01.01.19 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mbappe endurbirtir fræga mynd - Ronaldo ekki lengur upp á vegg

Mbappe er aðeins tvítugur.

Mbappe er aðeins tvítugur.

Canon

Mynd: Getty Images

Kylian Mbappe átti magnað ár og er í dag einn besti fótboltamaður í heimi. Framtíðin er mjög spennandi hjá honum.
Mbappe spilaði stórt hlutverk er Frakkland varð Heimsmeistari síðasta sumar og þá hjálpaði hann Paris Saint-Germain að vinna þrefalt í Frakklandi.

Þegar Mbappe var að brjótast fram á sjónvarsviðið með Mónakó þá birtist af honum mynd þar sem hann liggur í rúminu sínu. Veggirnir eru þaktir myndum af Cristano Ronaldo.

Mbapp hefur endurbirt myndina, en núna eru myndirnar ekki af Ronaldo, þær eru af honum sjálfum og því sem gerðist hjá honum á síðasta ári.

Hvernig verður 2019 fyrir Mbappe?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.