Fotbolti.net
01.01.19 - 11:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Özil ekki á láni - Rashford neitar Real Madrid

Mesut Özil.

Mesut Özil.

Canon

Mynd: Getty Images

Powerade
Það er komið að fyrsta slúðurpakka ársins. Janúarglugginn er opinn og nú fara hlutirnir að gerast!


Mesut Özil (30) hefur útilokað að fara á láni frá Arsenal í janúar. (ESPN)

Ítalíumeistarar Juventus hafa boðið Aaron Ramsey (28), miðjumanni Arsenal, fjögurra ára samning. Ramsey mun fá 138 þúsund pund í vikulaun hjá Juventus. (Tuttosport)

Adrien Rabiot (23), miðjumaður Paris Saint-Germain, mun ekki íhuga að fara til Tottenham. Hann lítur svo á að Tottenham sé of lítið félag fyrir sig. (ESPN)

Marcus Rashford (21) hefur ekki áhuga á Real Madrid, hann vill vera áfram hjá Manchester United. (Sun)

Dean Hoyle, eigandi og stjórnarformaður Huddersfield, hefur engan áhuga á því að sjá félagið falla úr ensku úrvalsdeildinni. Hann ætlar því að leyfa David Wagner og hans teymi að versla í janúar. (Daily Mail)

Tom Heaton (32) er hættur við að fara frá Burnley eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í um 15 mánuði. (Lancashire Telegraph)

Wolves, Huddersfield, Crystal Palace og Burnley eru áhugasöm um Tammy Abraham (21), sóknarmann Chelsea. Abraham er í láni hjá Aston Villa í Championship-deildinni. (Mail)

Chelsea hefur hafnað tilboði upp á rúmar 20 milljónir punda í Callum Hudson-Odoi (18), kantmann Chelsea. (Sky Sports)

Chelsea er að hætta við kaupin á Isco (26), miðjumanni Real Madrid. Leikmaðurinn er með of háar launakröfur. (Sun)

Bobby Adekanye (19), miðjumaður Liverpool, er í viðræðum við Lazio um fimm ára samning. (Corriere dello Sport)

Neil Warnock, stjóri Cardiff, er að íhuga að fá Glen Kamara (23), miðjumann Dundee og finnska landsliðsins. (Herald)

Manchester City er að ganga frá kaupum á hinum eftirsótta Oscar Tarensi (15). Hann spilar vinstra megin á vellinum, en Man Utd, Barcelona og Real Madrid hafa einnig verið að fylgjast með honum. (Sport)

West Brom hefur áhuga á því að fá miðjumanninn Victor Wanyama (27) á láni frá Tottenham. (Mail)

Gary Cahill (33), varnarmaður Chelsea, hefur ráðið einkaþjálfara svo hann verði í góðu standi ef hann kemst eitthvað annað í janúar. (Daily Telegraph)
Rashford er ekki að fara til Real Madrid. Hér fagnar hann marki með Paul Pogba.

Rashford er ekki að fara til Real Madrid. Hér fagnar hann marki með Paul Pogba.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.