Fotbolti.net
01.01.19 - 20:30
Arnar Helgi Magnússon

Sameiginlegt lið Man City og Liverpool

Tveir sem eru í liðinu.

Tveir sem eru í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir stærsta leik tímabilsins hingað til á Englandi þegar Manchester City tekur á móti Liverpool á Etihad vellinum í Manchester.

Flautað verður til leiks á fimmtudagskvöldið klukkan 20:00. Leikurinn er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Breski fjölmiðilinn Independent hefur tekið saman sameiginlegt lið þessara tveggja liða. Liverpool á sex fulltrúa í liðinu en Man City fimm.

Alisson vinnur baráttuna um markvarðarstöðuna en þeir eru að sjálfsögðu báðir brasilískir og eru því einnig í baráttu um sæti í brasilíska landsliðinu.

Liðin eiga svo sitthvora tvo fulltrúana í varnarlínunni á meðan Manchester City á alla miðjuna. Liverpool á síðan fremstu þrjá.

Hér að neðan má sjá liðið og umsögn um leikmennina frá Independent.

Markvörður: Alisson Becker
Ef frammistaða tímabilsins er tekin þá er þetta ekki nokkur spurning. Búinn að fá á sig færri mörk en Ederson.

Hægri bakvörður: Kyle Walker
Trent kom vel til greina þarna en reynslan sem að Walker býr yfir hefur betur í þetta skipti.

Miðvörður: Virgil van Dijk
Auðveldasta valið og þarf í raun ekki að ræða nánar. Besti varnarmaður deildarinnar.

Miðvörður: Aymeric Laporte
Leiðir varnarlínu City og kemur virkilega á óvart að jafngóður varnarmaður og Laporte hafi aldrei fengið sénsinn með franska landsliðinu.

Vinsti bakvörður: Andrew Robertson
Benjamin Mendy verið meiddur meira og minna alla leiktíðina. Oleksandr Zinchenko hefur spilað síðustu leiki sem vinstri bakvörður en hann er ekki á sama stað og Robertson.

Miðjumaður: Kevin De Bruyne
Þrátt fyrir meiðslin kemst De Bruyne í liðið. Þegar hann er á sínum besta degi er hann einn af þeim allra bestu í heiminum. Kæmist í hvaða lið sem er.

Miðjumaður: Fernandinho
Fabinho hefði veitt Fernandinho meiri samkeppni hefði hann verið búinn að spila meira. Fernandinho vinnur að meðaltali fleiri tæklingar og maður veit hvað maður fær frá honum.

Miðjumaður: Raheem Sterling
Staða sem að Sterling er ekki vanur að spila en enski landsliðsmaðurinn verður að vera þarna. Hefur tekið miklum framförum undir stjórn Pep. Níu mörk og sex stoðsendingar.

Hægri kantur: Mo Salah
Markahæstur í deildinni. Verið stórkostlegur á leiktíðinni og í raun frá því að hann kom til Liverpool.

Vinstri kantur: Sadio Mane
Mane heldur áfram að bæta leik sinn og hefur stimplað sig inn sem algjör lykilmaður í liði Liverpool.

Framherji: Roberto Firmino
Þó svo að Firmino hafi skorað meira áður þá er vinnan sem að hann vinnur fyrir liðið ómetanleg og yfirleitt sá hluti af hans leik sem að fólk tekur ekki eftir.
Sameiginlegt lið Man City og Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Sameiginlegt lið Man City og Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Sameiginlegt lið Man City og Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.