Fotbolti.net
01.02.17 - 12:48
Elvar Geir Magnússon

Formaður landsliðsnefndar: Reyndum að halda Lars

Geir Þorsteinsson og Rúnar Vífill.

Geir Þorsteinsson og Rúnar Vífill.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Vífill Arnarson, formaður landsliðsnefndar KSÍ, segir í viðtali við RÚV að það hafi komið sér á óvart að Lars Lagerback hafi tekið við þjálfun norska landsliðsins.

„Ég er bara að melta þetta ennþá,\" segir Rúnar en hann segir að tilraunir hafi verið gerðar til að halda Lagerback og miklar áherslur hafi verið lagðar á þær. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hafi séð um viðræður við þann sænska.
Rúnar segir það hafa verið sinn skilning að Lars hafi einfaldlega viljað hægja aðeins ferðina vegna aldurs en vill ekki fara nánar út í þær viðræður.

Fótbolti.net hefur reynt að ná í Geir í dag en þær tilraunir hafa ekki skilað árangri enn.

Sjá einnig:
Lars Lagerback tekinn við norska landsliðinu (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.