16.11.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Verið allan ferilinn hjá Fylki en gæti söðlað um

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Sveinn Segatta gæti verið á förum frá Fylki eftir að hafa allan sinn feril verið á mála hjá félaginu.
Orri er að skoða sína möguleika en hann er með lausan samning. Orri er miðvörður sem var í hlutverki fyrirliða á liðnu tímabili.
Hann er þrítugur og spilaði ekkert seinni hluta tímabilsins vegna meiðsla.

Á sínum tíma lék hann níu leiki fyrir yngri landsliðin og tímabilin 2015 og 2016 var hann á láni hjá Hugin á Seyðisfirði.