01.02.17 - 12:41
Magnús Már Einarsson
Ivanovic til Zenit St. Pétursborg (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Zenit St. Pétursborg hefur keypt varnarmanninn Branislav Ivanovic frá Chelsea. Ivanovic gerði þriggja og hálfs árs samning við Zenit.
Félagaskiptaglugginn í Rússlandi lokar ekki fyrr en 24. febrúar og því gat Ivanovic gengið frá samningi í dag.

Sagt er að hann hafi hafnað tilboðum frá ensku úrvalsdeildinni til að fara til Rússlands.
Ivanovic er 32 ára og afrekaði það hjá Chelsea að verða Englandsmeistari tvívegis auk þess að vinna Meistaradeildina og Evrópudeildina.
Hann hefur minna fengið að spila hjá Chelsea eftir að liðið skipti í 3-4-3 leikkerfi og ákvað Antonio Conte, stjóri Chelsea, að leyfa honum sjálfum að ráða framtíð sinni.

IT\'S OFFICIAL- Branislav Ivanovic is a Zenit player!
— FC Zenit in English (@fczenit_en) February 1, 2017
✍More details here: https://t.co/rlXQCYEdiT pic.twitter.com/I2DhHkdYoG