01.02.17 - 13:10
Magnús Már Einarsson
Jordan Rhodes til Sheffield Wednesday (Staðfest)

Skorar mikið í Championship.

Mynd: Getty Images

Skorar mikið í Championship.

Mynd: Getty Images
Sheffield Wednesday hefur fengið framherjann Jordan Rhodes í sínar raðir frá Middlesbrough.
Kaupverðið hljóðar upp á tíu milljónir punda en enska knattspyrnusambandið staðfesti í dag að skiptin hefðu náð í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 23:00 í gærkvöldi.

Hinn 26 ára gamli Rhodes hefur í mörg ár raðað inn mörkum í ensku Championship deildinni.
Rhodes skoraði 87 mörk í 129 byrjunarliðsleikjum með Huddersfield áður en hann fór til Blackburn þar sem hann skoraði 85 mörk í 158 leikjum í byrjunarliði.
Fyrir ári síðan gekk Rhodes í raðir Middlesbrough og hann skoraði mikilvæg mörk þegar liðið tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor. Á þessu tímabili lék Rhodes einungis sex leiki með Boro í úrvalsdeildinni en hann mun nú hjálpa Sheffield Wednesday í toppbaráttunni í Championship deildinni.