Fotbolti.net
01.02.17 - 12:33
Magnús Már Einarsson

Kristinn Jóns til Sogndal (Staðfest)

Kristinn Jóns til Sogndal (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson hefur gengið til liðs við Sogndal í norsku úrvalsdeildinni.

Kristinn kemur til Sogndal frá Sarpsborg 08 en hann gerði samning út þetta ár við nýja félagið.

Hinn 26 ára gamli Kristinn átti ekki fast sæti í liði Sarpsborg á síðasta tímabili og því hefur hann ákveðið að róa á önnur mið.

„Við erum mjög ánægðir með að fá Kristinn í okkar raðir,\" sagði Håvard Flo, yfirmaður íþróttamála hjá Sogndal.
Kristinn var í lykilhlutverki hjá uppeldisfélagi Breiðabliki áður en hann Sarpsborg keypti hann í sínar raðir. Árið 2014 spilaði Kristinn einnig í Svíþjóð með liði Brommapojkarna.

Kristinn er nú á leið til Kanaríeyja í æfingaferð með Sogndal. Þaðan fer hann til Las Vegas með íslenska landsliðinu í næstu viku en hann er í hópnum sem mætir Mexíkó í vináttuleik.

Sogndal endaði í ellefta sæti af sextán liðum í norsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hans gamla félag Sarpsborg endaði í sjötta sæti.

Here is Kristinn Jónsson with Håvard Flo after signing the contract. #TeamTotalFootball pic.twitter.com/VgYER1zBa5

— Total Football (@totalfl) February 1, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.