Fotbolti.net
01.02.17 - 11:51
Elvar Geir Magnússon

Twitter logar eftir að Lagerback tók við Noregi

Twitter logar eftir að Lagerback tók við Noregi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Utan Vallar
Stórfréttir dagsins eru þær að Lars Lagerback er tekinn við þjálfun norska landsliðsins. Óhætt er að segja að þessar fréttir séu sprengja inn í fótboltaumræðuna á Íslandi.

Lagerback hafði sagt að hann væri líklegast hættur þjálfun eftir að hann stýrði Íslandi í 8-liða úrslit ásamt Heimi Hallgrímssyni á EM í fyrra.
Hér má sjá brot af umræðunni sem skapast hefur á Twitter en við hvetjum lesendur til að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna.

Ok Lars vildi halda áfram í þjálfun. Það hefur eitthvað gengið á. Afhverju vildi hann ekki halda áfram með okkur? #LarsGate

— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) February 1, 2017

Hvað næst? Sir Alex tekur við Liverpool? 😑🔫 #fotboltinet

— Yngvi Eysteinsson (@yngvieysteins) February 1, 2017

LALLI! Finnst þetta eins og þegar kærastan dömpar þér og hoppar beint í fangið á öðrum. Svik. #lagerback #fotboltinet

— Rögnvaldur Már (@roggim) February 1, 2017


Skrifað í skýin að Ísland og Noregur verða saman í riðli í undankeppni EM 2020 #fotboltinet

— Magnús Már Einarsson (@maggimar) February 1, 2017


Takk Lalli fyrir þitt framlag til íslenskrar knattspyrnu. Gangi þér sem allra best (nema á móti ísl) á nýjum vettvangi #fotboltinet

— Matti Matt (@mattimatt) February 1, 2017


Saga sem ég heyrði í desember. Lagerback vildi halda áfram með Ísland en aðilar innan KSÍ vildu að Heimir tæki starfið einn

— Hörður S Jónsson (@hoddi23) February 1, 2017


Lars!..Noregur!!..common!...not cool!..þetta er eins og framhjáhald með ófríðum frænda manns #fotboltinet

— Torfi R. Sigurdsson (@torfira) February 1, 2017


Noregur besta landslið Norðurlandanna næstu 4 árin (Staðfest) 😭😭😭 #fotboltinet

— Kristofer Már (@kristomar98) February 1, 2017


Verður ekki örugglega opið dómshald yfir þeim sem klúðraði því að Lars héldi áfram með landsliðið okkar?

— Orri Freyr Rúnarsson (@OrriFreyr) February 1, 2017


Lars tekur við Noregi. Sem sagt: Við hefðum getað haft hann lengur en eitthvað eða einhver klúðraði því.

— Atli Fannar (@atlifannar) February 1, 2017


Ég vil bara láta vita strax, til að fyrirbyggja allan orðróm, að það var EKKI mín hugmynd að Lars tæki við norska landsliðinu. #fótboltinet

— Halldór Marteins (@halldorm) February 1, 2017


Til lykke fodbold Norge @NFF_info Sympatisk person og dygtig træner, der forstår vigtigheden af samarbejde.

— OliK (@OKristjans) February 1, 2017


Gratulerer Norge ! Legend i brua.

— Jón Páll Pálmason (@jonpallpalmason) February 1, 2017


Lars veit hvað hann syngur, tekur við Norðmönnum í miklu verri stöðu en liðið à að vera og getur eiginlega bara farið uppàvið með þà.

— Einar Matthías (@einarmatt) February 1, 2017


Krakkar. Við köllum ekki fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands fas­ista. Muna það.

— Stefán Óli Jónsson (@St_Oli) February 1, 2017


Nei Lars! NEI! NEI! NEI! NEI! pic.twitter.com/xWx1LfdUCl

— Hrannar Már (@HrannarEmm) February 1, 2017


Lars 😥

— Anton Ingi Leifsson (@antonleifs) February 1, 2017


Smugan, Noregslánið og svo þetta.....

— Helgi Seljan (@helgiseljan) February 1, 2017


Kenning: Lars ætlar að sigra og sameina allar Norðurlandaþjóðirnar. Síðan drottna sem ástsæll samnorrænn konungur. #KingLars #fotboltinet

— S. Mikael Jónsson (@S_Mikael_J) February 1, 2017


Svíar eru líka svekktir...

Nooooooooo! Lars Lagerbäck is the new Norway coach. That\'s it. The world has officially ended. Lars, how could you? Of all the countries...

— Marcus Christenson (@m_christenson) February 1, 2017


Og þetta segir einn norskur sérfræðingur:

Vi får en 🇸🇪landslagssjef som skal bo i 🇸🇪. 🙈

— morten langli (@skolemorten) February 1, 2017


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.