Fotbolti.net
01.02.18 - 00:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Alexander Sörloth til Crystal Palace (Staðfest)

Alexander Sörloth á að koma með mörk í Crystal Palace.

Alexander Sörloth á að koma með mörk í Crystal Palace.

Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace ætlar ekki að leyfa fólki að fara snemma í háttinn. Félagið var nú rétt í þessu að staðfest kaup á norska sóknarmanninum Alexander Sörloth.

Sörloth kemur frá Midtjylland í Danmörku.

Kaupverðið á honum er sagt vera 9 milljónir punda (og það gæti eitthvað bæst síðar við það) en Palace gefur það ekki upp.
Hinn 22 ára gamli Sörloth hefur skorað 15 mörk í 26 leikjum á þessu tímabili í með Midtjylland.

„Það er draumur að rætast að spila í ensku úrvalsdeildinni. Mig hefur dreymt um þetta frá því ég var sex ára,\" sagði Sörloth eftir að hann krotaði undir samning við Palace. Samningurinn er til 2022.

Palace er líka að reyna að kaupa markvörðinn Frederik Ronnow, en það er ólíklegt að það takist. Ibrahim Amadou, miðjumaður og fyrirliði Lille, er heldur ekki á leiðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.