01.02.18 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Barnsley fékk Oli McBurnie á láni (Staðfest)

Fáir fótboltamenn spila með sokkana neðar en Oli McBurnie. Hér er hann í bárattu við Orra Sigurð Ómarsson á Víkingsvelli árið 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Barnsley fékk Oli McBurnie, framherja Swansea, á láni rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði i gærkvöldi.
McBurnie er 21 árs Skoti sem spilaði talsvert með Swansea í kringum jólin en er nú dottinn úr myndinni eftir að Andre Ayew kom til félagsins frá West Ham í gær.
McBurnie spilaði með skoska U21 árs landsliðinu gegn Íslandi á Víkingsvelli árið 2016. Leikurinn fór fram í vondu veðri en McBurnie virtist vera ennþá meira kalt en öðrum leikmönnum í leiknum.
Barnsley er í 19. sæti í Championship deildinni og liðið fékk tvo aðra leikmenn fyrir fallbaráttuna áður en glugginn lokaði í gærkvöldi.

Miðjumaðurinn Christoph Knasmullner kom frá Admira Wacker í Auusturríki og varnarmaðurinn Matt Mills kom frá Nottingham Forest.