01.02.18 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Benik Afobe til Wolves á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wolves hefur fengið framherjann Benik Afobe á láni frá Bournemouth út tímabilið.
Úlfarnir eru með ellefu stiga forskot á toppnum í Championship og stefna hraðbyri á ensku úrvalsdeildina.
Afobe, sem er frá Kongó, þekkir vel til hjá Wolves því hann skoraði 23 mörk í 48 leikjum með liðinu tímabilið 2015/2016 áður en hann gekk í raðir Bournemouth.

Hinn 24 ára gamli Afobe ólst upp hjá Arsenal en hann mun nú hjálpa Wolves út tímabilið.